156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:59]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mér svíður sárt að sjá vanskilninginn og vantrúna hér í þessum sal á þennan mikilvæga atvinnuveg sem sjávarútvegurinn er á Íslandi, einn best rekni sjávarútvegur í heimi. Það á allt í einu að fara að miða hann við sjávarútveg sem er í allt annarri stöðu og ekki eins vel rekinn. Við ætlum að fara að miða okkur við Noreg. Ég hef sagt það áður: Hversu smá ætlum við að vera hér sem sterk og sjálfstæð þjóð? Þá er ekki nóg að setja fánamerkið í jakkaboðunginn hér í dag, eins og stjórnarflokkarnir gera, ef þeir ætla ekki að standa með atvinnulífinu á Íslandi, ef þeir ætla ekki að standa með velferðarkerfinu og verðmætasköpun. Eitt er að setja hér inn í þessi lög að það eigi að vera eftirlitsbeiðni um áhrif þessa frumvarps. Ég get bara sagt ykkur það: Það mun koma of seint. (Forseti hringir.) Hvað ætlið þið að kanna þegar það verður búið að loka og togarinn verður farinn? Hvað á að standa í þeirri skýrslu? (Forseti hringir.) Hvernig ætlið þið þá að bregðast við? Mér þykir ömurlegt að sjá hvernig stjórnin og stjórnarmeirihlutinn (Forseti hringir.) hefur unnið þetta mál frá A til Ö.