veiðigjald.
Frú forseti. Ég verð bara að segja: Þvílíkur léttir. Ég trúði ekki lengi vel að þessi dagur myndi nokkurn tímann koma en hann er kominn. Hér er um gríðarlegt réttlætismál að ræða og það munaði minnstu að ósvífið málþóf stjórnarandstöðunnar myndi skemma þennan framgang. Þetta hefði jafnvel ekki orðið núna og þetta góða frumvarp hefði dagað uppi. Blessunarlega tókst það ekki. Ég vil sérstaklega þakka okkar góða forseta fyrir að hafa gripið til þess ákvæðis sem við köllum 71. gr. þingskapalaga til þess að stöðva þann ósóma sem átti sér stað hérna í þessu málþófi. Ósvífið málþóf. Þetta mun auðvitað ekki líðast en við erum hér að læra og hér þarf heldur betur að taka til því að svona gengur ekki að vinna hér á hinu háa Alþingi. Það er ekki hægt að bjóða fólkinu í landinu upp á þetta aftur.