156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:04]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Forseti. Ég held að ég hafi útskýrt í nægilega góðu máli hingað til að þetta mál er ekki nægilega vel undirbúið og það hefði vel þolað að ríkisstjórnin hefði tekið það til sín og komið með það í haust og getað klárað það, miðað við það að gildistíminn er 1. nóvember. Þess vegna eru síðustu dagar óskiljanlegir í því ljósi. Ég segi nei og við í Framsókn segjum nei.