156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Hér erum við að sjá fram á að hér á þinginu er verið að samþykkja nýjan landsbyggðarskatt: Aukaskatta á Snæfellsnesið. Vestfjarðaskattur. Aukum skatta á Norðurland, íbúa þar. Sveitarfélögin veikjast. Austfjarðaskattur, Eyjaskattur. Það er verið að draga þróttinn úr landsbyggðinni — það er verið að draga þróttinn úr landsbyggðinni, svo einfalt er það. Byggðastofnun fékk ekki að koma fyrir nefndina þrátt fyrir óskir minni hlutans. En Byggðastofnun er boðuð á fund nefndarinnar eftir að búið er að setja 71. gr. hér á þingmenn á föstudaginn. Þá kemur fyrst að þeim tímapunkti að Byggðastofnun kemur inn. Gögn og greiningar í þessu máli eru ekki til staðar, þær eru ekki til staðar. Þetta er illa unnið mál frá grunni (Forseti hringir.) og það að búa til eitthvert eftirlit og safna gögnum eftir á í rauntíma þegar þetta er að gerast í staðinn fyrir að vinna gögnin áður en mál er sett fram — það er til skammar.