veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er með gleði sem ég styð þetta mál. Eins og ég sagði áðan erum við að ramma inn þjóðareign á auðlind og sanngjarnt afgjald fyrir það. Eða hvað? Það hefur lengi verið talað um að þjóðin ætti að fá þriðjung en útgerðin tvo þriðju. Þannig hefur það ekki verið undanfarin ár. Meðaltalið frá 2012 eru 16–18%. Núna leiðréttum við þetta með því að leiðrétta veiðigjöldin. En auðvitað má spyrja: Er þriðjungur sanngjarnt? Kannski svörum við ekki spurningunni um rétt afgjald fyrir aðgang að auðlindinni fyrr en hún er boðin upp á einhvern hátt og útgerðin sjálf verðleggur hana. En það er önnur ræða, það er önnur stund. Dagurinn í dag er risastór. — Ég segi já með stolti.