veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn er svo mikið að vinna fyrir almenning að hún gleymdi því, og fjármálaráð benti á það, að kanna hvort það væri þjóðhagslegur ábati af þessum breytingum. Hún gleymdi því, hún er svo mikið að vinna fyrir almenning. Það stendur skýrt á blaðsíðu 7 í álitsgerð fjármálaráðs til Alþingis Íslendinga. Og þegar maður hélt, virðulegi forseti, að hæstv. ríkisstjórn væri búin að toppa sig í popúlisma þá steig hæstv. utanríkisráðherra á stokk og sló eigið met í popúlisma í vandræðum sínum við að útskýra af hverju þau keyrðu á þetta mál en ekki á önnur mál sem þau eru búin að lofa. Ég held að þetta sé Evrópumet, virðulegi forseti, alla vega ESB-met. Við sitjum hér uppi með mál sem á að taka gildi 1. nóvember. Það kom of seint fram, er illa unnið, (Forseti hringir.) það er ekki svarað spurningum sem eðlilega koma fram. En öllu öðru, þar með talið strandveiðunum, (Forseti hringir.) orkunni og öðru, er fórnað fyrir þetta eina popúlíska mál. Það eru slæmar fréttir fyrir íslenska þjóð og ekki, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, í þágu neinna almannahagsmuna. Þetta eru sérhagsmunir (Forseti hringir.) ríkisstjórnar.