156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:10]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Undanfarin ár og áratugi hefur umræðan um sjávarútveg, þessa mikilvægu atvinnugrein, hverfst um það mikla óréttlæti sem felst í því hversu lítinn hlut þjóðin hefur borið af nýtingarrétti auðlindarinnar. Um það óréttlæti hefur verið staðinn vörður af fyrrverandi stjórnvöldum. Umræðan hefur harðnað töluvert undanfarin ár eftir því sem sífellt hefur komið betur í ljós hin gríðarlega auðsöfnun örfárra aðila í ljósi og í krafti þessa sama nýtingarréttar og nú er verið að leiðrétta það mikla prinsippmál. Það hefur komið fram í máli stjórnarandstæðinga hér, sem finna þessu máli allt til foráttu, að þeir telja sig tala máli landsbyggðarinnar. Fátt er meira fjarri sannleikanum. Það er nákvæmlega á landsbyggðunum sem þetta gríðarlega óréttlæti hefur komið í ljós. Samþætting, brotthvarf skipa, tilfærsla kvóta, (Forseti hringir.) auðsöfnun og það að þetta hefur ekki skilað sér til þjóðarinnar með tilheyrandi uppbyggingu innviðaskuldar. Því breytum við nú. Þetta er góður dagur. — Ég segi já. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)