156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:22]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er stórt og mikið mál. Ég geri mér grein fyrir því að það er kannski pínu erfitt fyrir stjórnarandstöðuna að horfast í augu við samhenta ríkisstjórn sem er strax byrjuð að láta verkin tala. Við erum að tala um hallalaus fjárlög fyrr en áður var gert ráð fyrir. Við erum að tala um að efla löggæslu, auka öryggi og styrkja innviði. Við ætlum að taka utan um fólkið okkar, treysta velferðina, tryggja innviði um allt land og líka að borga skuldir. Þetta er framsýn fjármálaáætlun. Hún er metnaðarfull, að sjálfsögðu, en við erum að gera þetta fyrir fólkið okkar um allt land.