156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:23]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fór yfir í umræðunni um fjármálaáætlun nokkur atriði sem koma fram í áætluninni og áætlun núverandi ríkisstjórnar og hlakka svo sannarlega til þess að hefja vinnuna aftur í haust í fjárlaganefnd þar sem við munum leggja frekar út af þessari áætlun varðandi fjárlög næsta árs. Eins og ég sagði í ræðu minni um áætlunina: Með góðu samstarfi og góðum anda, sem mér finnst hafa verið í fjárlaganefnd á þessu þingi, þá hlakka ég til að koma til starfa aftur í haust. Mig langar að lokum að þakka formanni og varaformanni fjárlaganefndar fyrir að hafa haldið vel utan um þessa vinnu.