fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég hélt að við værum að ræða hér fjármálaáætlun. Svo hlustaði ég á hæstv. utanríkisráðherra sem er með einhverjar allt aðrar upplýsingar en þingheimur um hvað er í þessu. Það stenst ekki nokkra einustu skoðun sem hæstv. utanríkisráðherra segir. Þessi samhenta ríkisstjórn er mjög samhent í því að fara ekki eftir lögum um opinber fjármál, fannst að vísu mjög alvarlegt að einhver skyldi benda á það. Menn hefðu betur sleppt flugeldasýningunni um hallalaus fjárlög. Því er búið að breyta í meðförum þingsins, meiri hluta fjárlaganefndar, og menn ná ekki þeim markmiðum sem þar eru og búið er að bæta við í texta útgjöldum sem gera það að verkum að menn munu að öllu óbreyttu aldrei ná hallalausum fjárlögum á þessum fimm árum. Það er ekki gert ráð fyrir því að lækka neinar skuldir. Næstu ríkisstjórnir eiga að gera það. Reyndar segir fjármálaráð að ef menn ætla að halda áfram á sama hraða og lagt er upp með munum við ná markmiðum um skuldaviðmið árið 2050 — 2050, virðulegur forseti. (Forseti hringir.)
Í stuttu máli: Það stendur ekki steinn yfir steini. Hún er nú þegar úrelt, þessi fjármálaáætlun. (Forseti hringir.) Jú, jú, ég hlakka til að vinna í hv. fjárlaganefnd en guð minn almáttugur, þessi vinnubrögð eru fyrir neðan allar hellur og forgangur ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) kemur hér því miður mjög vel fram.