156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[14:57]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um gríðarlega mikilvægt mál sem snýr að heildarendurskoðun jöfnunarsjóðs, máli sem fyrri ríkisstjórn tókst ekki að koma í gegn en við erum að klára núna. Þetta er risastór áfangi en það er þó ýmislegt eftir. Mig langar að fá að vitna hér í grein nokkurra bæjar- og sveitarstjóra á landsbyggðinni sem segja að það gangi ekki upp að sum sveitarfélög lækki útsvarið og ætlist svo til að jöfnunarsjóður bæti þeim upp tekjurnar.

Jöfnunarsjóður, eins og orðið gefur til kynna, á að jafna tekjuöflunarmöguleika og útgjaldaþarfir sveitarfélaga. Þannig að við erum að fresta þessari innleiðingu og það þarf að gera meira. Það þarf að skoða grunnskólaframlagið og það þarf líka að skoða sveitarfélög sem eru með miklar þarfir þegar kemur að félagsþjónustu. Ég legg til að hæstv. ráðherra fari í það í haust af því að þetta er risastór áfangi en það eru samt ýmsar fíniseringar eftir. Ég mun því með glöðu geði segja já við samþykkt þessara laga enda risastórt skref. Það ber líka að hlusta á sveitarfélögin á landsbyggðinni sem hefur svo margoft verið nefnt í þessum sal, en Sjálfstæðismenn hafa ákveðið að líta fram hjá því þegar kemur að grein 3.5.