156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[14:58]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það hefur komið hér fram á þinginu að það sé réttur hverrar ríkisstjórnar að leggja fram vitlaus frumvörp og fá þau jafnvel samþykkt. En þegar slíkt er gert í jafn miklu óhófi og hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert undanfarið er gott að eiga staðfasta stjórnarandstöðu sem vindur ofan af mestu vitleysunni. Nú liggur fyrir breytingartillaga, sem verður væntanlega samþykkt, sem mun verða til þess að 95.000 Íslendingar verða ekki fyrir fyrirhugaðri skattahækkun af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Og það er vel. Þess vegna er nauðsynlegt fram í tímann, af því að hér eru tveir samstæðir stjórnarflokkar sem bisa við að troða sokk upp í þann þriðja, að hér sé á þinginu staðföst og öflug stjórnarandstaða til að taka í taumana þegar allt fer í viftuna.