156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[15:03]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er gleðilegt að hér sé verið að samþykkja heildarendurskoðun á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þetta mál er lagt fram í þriðja sinn og verkstjórnin er að sigla þessu máli örugglega í höfn. Þetta frumvarp hefur það hlutverk að einfalda sjóðinn en líka að jafna stöðu sveitarfélaga á landsbyggðinni, jafna búsetuskilyrði, hvort sem fólk kemur úr fjölmennum byggðakjarna á höfuðborgarsvæðinu eða litlum bæjum úti á landi. Þetta skiptir miklu máli. Það skiptir líka miklu máli að við séum að ná að sigla þessu máli í höfn núna á þessu vorþingi þannig að sveitarfélögin hafi allar fjárhagslegar forsendur sem þau þurfa á að halda strax í haust þegar þau fara að vinna að sinni fjárhagsáætlanagerð. Þetta skiptir miklu máli.

Ég vil þó líka taka undir það sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á og einnig hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, að það eru enn þá úrbætur sem við þurfum að gera á þessu kerfi og ég lít á þetta sem fyrsta skrefið. Þetta er stórt skref og mikilvægt skref en það eru fleiri annmarkar sem við þurfum að laga í jöfnunarsjóðskerfinu okkar.