Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Hér er um mjög mikla kerfisbreytingu að ræða, mjög gott mál sem hefur farið í gegnum mikla vinnu og er þar af leiðandi mjög vel undirbúið. Starfshópar á starfshópa ofan, tvisvar áður lagt fyrir þingið og er núna að koma til atkvæðagreiðslu. Kerfisbreyting sem er einföldun, gerir hlutina skilvirkari og er betri fyrir sveitarfélögin. Sambærilegur stuðningur við sambærileg sveitarfélög en ekki eins og núverandi kerfi er í dag. Hér er engu að síður lögð fram breytingartillaga sem styður auðvitað ekki við markmið laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem er félagslegur jöfnunarsjóður til þess að jafna stöðu sveitarfélaga, þegar einhver sveitarfélög mega bara taka útsvarið og gera eitthvað annað við það en fá eftir sem áður stuðning úr jöfnunarsjóði. Þannig að við í Framsókn munum leggjast gegn þeirri breytingartillögu. Við hefðum kosið (Forseti hringir.) að sjá lengri aðlögunartíma þannig að ég reikna með að við munum sitja hjá.