Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Hér eru að mörgu leyti tímabærar breytingar að verða í þessari heildarendurskoðun, eins og kemur fram í nefndaráliti 1. minni hluta sem þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í hv. nefnd skrifa undir. Mér finnst mikilvægt að hér hafi náðst fram, eða að það stefni í að sú niðurstaða verði ofan á, að horfið verði frá þessum fullnýtingaráformum varðandi útsvar þannig að í raun verði ekki samþykkt hér lög sem lögþvinga sveitarfélög til að færa útsvar sitt í hæstu hæðir. Það þykir mér vera til mikilla bóta. Þó að enn eigi eftir að greiða atkvæði um þá breytingartillögu þá liggur hún hér fyrir. Hún er bæði lögð til í nefndaráliti 1. minni hluta sem þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks skrifa undir og sömuleiðis kom hún fram í breytingartillögu sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir lagði fram hér, að ég held strax við 1. umræðu málsins. Við í þingflokki Miðflokksins munum greiða atkvæði með henni.