156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[15:14]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að fá að taka það fram hér að gefnu tilefni að það var sátt um það að ljúka afgreiðslu á þessari breytingartillögu með þessum hætti við þinglok. Það var sátt um það að fresta afgreiðslu eða breytingum á útsvarinu til að ná sáttum í því. Þess vegna kann ég ekki að meta það þegar fólk kemur hér upp og vænir meiri hlutann um ákveðna hluti, eins og hátt hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson kom hér upp áðan og fór yfir. Í það allra minnsta, eftir allt sem hefur gengið á inni í þessum sal og það náðist samkomulag um þinglok og meiri hlutinn var tilbúinn að fresta þessari breytingu á útsvari, þá finnst mér eðlilegt að það komi skýrt og rétt fram hér í pontu Alþingis og að fólk sé ekki að reyna að sækja sér aukastig á lokametrunum. — Ég segi já við þessu, frú forseti.