156. löggjafarþing — 91. fundur,  14. júlí 2025.

beiting 71. gr. þingskapalagag.

501. mál
[15:59]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Hæstv. forseti. Það eru sérstakir tímar uppi á Alþingi Íslendinga, sérstakir tímar og aðstæður sem hafa ekki komið upp í stjórnmálasögu þjóðarinnar. Af þeim sökum mun ég flytja hér sérstaka yfirlýsingu fyrir hönd þingflokka stjórnarandstöðunnar.

Framganga hæstv. þingforseta með beitingu 71. gr. þingskapalaga með fordæmalausum hætti án nokkurrar umræðu þar um skapaði trúnaðarbrest á milli stjórnarandstöðunnar og forseta. Valdbeiting kallar á viðbrögð og varkárni þess sem verður fyrir henni. Forseta hlýtur að hafa verið ljóst að sú ákvörðun er ekki án afleiðinga og mun ekki verða án afleiðinga, lita samskipti okkar og setja svip á þinghald kjörtímabilsins. Hér varð alvarlegur trúnaðarbrestur á milli stjórnarandstöðunnar og forseta. Við komumst ekki hjá því að líta svo á að forseti sé fyrst og fremst fulltrúi meiri hlutans en ekki forseti alls þingsins.