156. löggjafarþing — 91. fundur,  14. júlí 2025.

þingfrestun.

. mál
[16:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Hv. alþingismenn. Brátt lýkur störfum þessa þings, 156. löggjafarþings, sem er fyrsta þing kjörtímabilsins. Upphaf og lok þessa löggjafarþings ber upp á óvenjulegum tíma. Þing kom saman 4. febrúar síðastliðinn vegna alþingiskosninga 30. nóvember á síðasta ári og nú er langt liðið á sumarið. Á þeim tíma sem liðinn er frá setningu þings hafa 33 stjórnarfrumvörp og tvö nefndarfrumvörp orðið að lögum. Alls hafa því 35 lög verið samþykkt á yfirstandandi þingi. Í heild hafa 12 þingsályktanir verið samþykktar, 11 stjórnartillögur og ein nefndartillaga. Ráðherrar hafa svarað 159 fyrirspurnum skriflega og 12 munnlega. Þá svöruðu ráðherrar 168 fyrirspurnum í óundirbúnum fyrirspurnatímum. Sérstakar umræður hafa verið tíu og ein munnleg skýrsla ráðherra flutt.

Það er vel við hæfi að nú standi yfir kvennaár 50 árum eftir kvennaárið góða 1975 sem sum okkar hér inni voru svo heppin að lifa, ár þar sem baráttan gegn ofbeldi hvers konar, gegn kynbundnu ofbeldi og vanmati á framlagi kvenna og kvára nær nýjum hæðum. Ég hef á þessu þingi í ræðu og riti lagt áherslu á að Alþingi Íslendinga taki þátt í kvennaárinu og minnist þess sérstaklega síðar á þessu ári.

Í þessum júlímánuði voru tvenn merk tímamót. Annars vegar eru 150 ár liðin frá því að Alþingi kom saman í fyrsta sinn eftir að Kristján IX. Danakonungur færði Íslendingum nýja stjórnarskrá árið 1874 á 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar. Hins vegar eru 150 ár frá því að skrifstofa Alþingis var sett á fót. Þeim tímamótum var fagnað í Smiðju 22. maí síðastliðinn. Til fagnaðarins var boðið þingmönnum og starfsfólki skrifstofunnar, núverandi og fyrrverandi. Í Smiðju eru til sýnis ýmis gögn og munir sem tengjast þessu fyrsta starfsári skrifstofunnar, m.a. nafnlausa konan sem þreif og náðist ekki á mynd.

Þetta þing hefur verið krefjandi og tekist hefur verið á. Þingið hefur borið margs konar einkenni sem forseta þykja miður. Það er starf okkar alþingismanna, hvort heldur við styðjum ríkisstjórn, hvort heldur við sitjum í meiri hluta eða minni hluta, að tryggja það að Alþingi Íslendinga fái sinnt hlutverki sínu svo sómi sé að. Alþingi er einstakur vettvangur fyrir umræður í lýðræðislegu þjóðfélagi sem hefur grundvallarþýðingu. Á því berum við öll ábyrgð.

Starfsáætlun 157. löggjafarþings hefur verið samþykkt og ég vona að okkur muni farnast vel á næsta löggjafarþingi að fylgja henni. Það er von mín að næsta þingvetur getum við saman skipulagt þingstörfin þannig að samstaða og fyrirsjáanleiki sé um þau og sómi að þeim fyrir Alþingi Íslendinga.

Við lok þinghaldsins vil ég þakka öllum alþingismönnum fyrir samstarfið í vetur. Ég sendi starfsfólki Alþingis bestu þakkir fyrir frábærlega vel unnin störf. Ég vænti þess að við hittumst heil þegar Alþingi kemur saman að nýju.

Að lokum langar forseta að segja eftirfarandi við hv. þingmenn: Nú skulum við njóta hins guðdómlega íslenska sumars. Leggjum frá okkur farsímana, hvílum okkur á samfélagsmiðlunum og horfumst í augu við börnin okkar og barnabörnin okkar. Höfum það í huga að af hálfu jarðarinnar byrja allir dagar fallega.