156. löggjafarþing — 91. fundur,  14. júlí 2025.

þingfrestun.

[16:07]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 156. löggjafarþings, frá 14. júlí 2025 eða síðar ef nauðsyn krefur, til 9. september 2025.

Gjört á Bessastöðum, 14. júlí 2025.

Halla Tómasdóttir.

_________________

Kristrún Frostadóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 156. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil nota tækifærið til að þakka hv. alþingismönnum fyrir samstarfið á þessu þingi og þakka starfsfólki þingsins sérstaklega fyrir vel unnin störf síðustu vikur. Hér hefur verið unnin gríðarlega góð vinna, stundum við krefjandi aðstæður. Við erum sannarlega að upplifa nýja tíma hér í þinginu. Ég ber þá von í brjósti að þegar þing kemur saman á ný í haust getum við sammælst um skipulag þingfunda og umræðna sem tryggir skilvirka og sanngjarna meðferð þingmála.

Ég vil óska hv. þingmönnum öllum og starfsfólki þingsins gleðilegs sumars og vil að lokum þakka sérstaklega hæstv. forseta fyrir mikilvæga og góða vinnu hér á fyrsta þingi nýrrar ríkisstjórnar.