ávarp forseta Alþingis.
Hv. þingmenn. Ég býð ykkur velkomin til starfa á 157. löggjafarþingi, sem nú er að hefjast. Það er ósk mín að okkur takist vel til við hin mikilvægu störf sem fram undan eru. Hver og einn þingmaður, hvort sem hún eða hann er í stjórnarliði eða stjórnarandstöðu, gegnir þar ríku hlutverki. Gesti Alþingis við þessa þingsetningarathöfn býð ég einnig velkomna. Ég heilsa ykkur, starfsfólk Alþingis, og vænti góðs samstarfs við ykkur á löggjafarþinginu sem fram undan er. Án ykkar gætu hinir kjörnu fulltrúar ekki rækt hlutverk sitt á löggjafarsamkomunni sem skyldi.
Í sumar tók Sverrir Jónsson við starfi skrifstofustjóra Alþingis af Rögnu Árnadóttur sem hér hafði staðið í stafni um árabil. Ég býð Sverri velkominn til starfa og flyt Rögnu þakkir fyrir afar vel unnin störf hér á vettvangi þingsins.
Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var lögð í hólf þingmanna í gærkvöldi ásamt eftirriti af stefnuræðu forsætisráðherra. Starfsáætlun þessa þings var samþykkt í forsætisnefnd í sumar og hefur legið fyrir í nokkrar vikur. Hún er með hefðbundnu sniði nema að því leyti að gert verður hlé á þingstörfum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem haldnar verða 16. maí 2026. Ég bið hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að kynna sér starfsáætlunina vel og taka tillit til hennar við skipulag annarra starfa á vettvangi stjórnmálanna.
Við hefjum þetta annað þing kjörtímabilsins að hausti eins og venja er til og fram undan er níu mánaða lota. Það er einlæg von mín að þingstörfin verði hvort tveggja markviss og vönduð í vetur.
Í sumar sem leið greip forseti til þess ráðs að beita 2. mgr. 71. gr. þingskapalaga til að binda enda á 2. umræðu um þingmál, umræðu sem þá hafði staðið lengur en dæmi voru um. Aðstæður voru óvenjulegar og flóknar. Þegar ég lagði til að umræðunni lyki var að mínu mati fullreynt að samningar um þinglok myndu takast. Það voru vissulega vonbrigði að samningaleiðin reyndist ekki fær og af því þarf þingheimur að draga lærdóm, bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar.
Ég mun ekki leita blóraböggla ellegar setja fram eftiráskýringar um hvað hefði betur mátt fara. Sem forseti Alþingis tek ég fulla ábyrgð á beitingu 71. gr. við þær aðstæður sem ríktu í sumar.
En ég segi við ykkur, hv. þingmenn, að leiðina frá þeim stað sem þingið var á 14. júlí síðastliðinn verðum við að feta saman. Ég er meðvituð um að sem forseti þarf ég að endurvinna traust margra í þessum sal og að því ætla ég að vinna af heilindum. Ég bið líka alla hér inni að axla sameiginlega ábyrgð á því verkefni að koma þingstörfunum í skilvirkara horf. Það er sameiginlegt verkefni okkar og ég ætla að leyfa mér að halda því fram að það myndi mælast vel fyrir hjá kjósendum okkar ef það tekst. Fordæmin eru allt í kringum okkur á þjóðþingum nágrannalandanna. Sé ásetningurinn jákvæður og viljinn góður má færa margt til betra horfs í góðri sátt og samvinnu.
Ég gat þess við upphaf 156. löggjafarþings að hefjast þyrfti handa við undirbúning þess að árið 2030 verða liðin 1100 ár frá stofnun þessarar merku löggjafarsamkomu. Ekki gafst færi á því í vor að leggja fram þingsályktunartillögu vegna þessa stórafmælis en hún verður lögð fram á yfirstandandi þingi. Á þessu þingi verður einnig minnst 50 ára afmælis fyrsta kvennafrídagsins núna 24. október og gefinn gaumur að kvennaárinu sem nú er fagnað, m.a. með því að hafa opið hús fyrir almenning.
Að síðustu leyfi ég mér að segja að ég er vongóð um að þingstörfin muni ganga að óskum á þessu þingi og verða landi og lýð til heilla og okkur hér á hinu háa Alþingi til sóma.
Nú verður þessum þingfundi brátt frestað og ég bið þingmenn og gesti Alþingis að þiggja veitingar í Smiðju í tilefni dagsins. Ég vil biðja hæstv. forsætisráðherra að ganga fremstan með mér úr salnum til Smiðju.