157. löggjafarþing — 1. fundur, 9. sept. 2025.
Kosning 2. varaforseta í stað Gríms Grímssonar.
Tekið er fyrir 1. dagskrármálið, kosning 2. varaforseta í stað Gríms Grímssonar, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa. Mér hefur borist ein tilnefning, um 7. þm. Norðausturkjördæmis, Ingvar Þóroddsson. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Ingvar Þóroddsson réttkjörinn sem 2. varaforseta Alþingis og óska honum allra heilla í starfi.