Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð hafa þingflokkarnir einnig sex mínútur hver.
Röð flokkanna er í báðum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur.
Ræðumenn fyrir Samfylkinguna verða Kristrún Frostadóttur forsætisráðherra í fyrri umferð og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra í seinni umferð.
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk., í fyrri umferð og í seinni umferð Ólafur Adolfsson, 1. þm. Norðvest.
Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Sigmar Guðmundsson, 7. þm. Suðvest., í þeirri seinni.
Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, 12. þm. Suðvest., í seinni umferð.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, í fyrri umferð og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í seinni umferð.
Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þm. Suðurk., og í seinni umferð Ingibjörg Isaksen, 5. þm. Norðaust.