Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Forseti. Góðir landsmenn. Ísland er stórkostlegt land, land sem er ríkt af auðlindum, fólki sem er duglegt og vill að komandi kynslóðir hafi það betra en þær fyrri. Vegna góðra ákvarðana fyrri kynslóða erum við fremst meðal þjóða á mörgum sviðum. Núna stöndum við frammi fyrir því að búa við gríðarlega hátt vaxtastig sem sligar mörg heimili. Því var ánægjulegt þegar sitjandi ríkisstjórn lofaði aðhaldi í ríkisrekstri. En orð eru ekki nóg. Það þarf líka efndir. Ríkisstjórnin leggur nú fram sitt fyrsta fjárlagafrumvarp og þar sést svart á hvítu að loforðin standast ekki. Það á ekki að draga úr ríkisútgjöldum en það á að hækka skatta og gjöld á þá sem síst mega við því. Útgjöld ríkisins á næsta ári verða hærri en nokkru sinni fyrr, rúmir 1.600 milljarðar. Þessi ríkisstjórn boðar hærri ríkisútgjöld en útgjöld Covid-áranna, hærri en þau voru í fyrra og hærri en þau verða í ár. Er þetta í alvörunni planið?
Til samanburðar voru ríkisútgjöld árið 2015, í ríkisstjórnartíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar, 693 milljarðar. Á uppfærðu verðlagi væru það um 1.100 milljarðar, þ.e. 500 milljarða munur. Er nema von að Seðlabankinn treysti sér ekki til að lækka vexti?
Forseti. Það er með ólíkindum að forsætisráðherra kalli metútgjöld ríkissjóðs tiltekt. Raunveruleikinn er hefðbundinn vinstri grautur; verðbólga og vextir í hæstu hæðum. Aðstoðarmönnum, PR-fulltrúum og öðrum ráðgjöfum er bætt við í ráðuneytin á meðan almenningur má bíða eftir vaxtalækkunum. Báknið stækkar og eina málið sem ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu að yrði sett til hliðar er komið fremst á dagskrá með tilheyrandi kostnaði: Undirbúningur fyrir aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Forsætisráðherra heldur reyndar áfram að fela vegferðina en utanríkisráðherra kemur jafnharðan og minnir á hana.
En upplifir einhver að við séum að fá betri þjónustu fyrir gegndarlaus útgjöld síðustu ára? Nei, báknið hefur stækkað, skattar aukist, þjónusta versnað og málefni útlendinga eru orðin stjórnlaus málaflokkur, málaflokkur sem í kjarnanum snýst ekki um útlendingana heldur samfélagið okkar, gildin okkar, menninguna og velferðarkerfið sem hefur verið byggt upp á löngum tíma. Kerfi sem veitir aðgang að menntun, heilbrigðisþjónustu og öryggi. Snöggar og stjórnlausar breytingar á samfélagsgerðinni hafa áhrif og það þarf að ræða af skynsemi hvernig stýra megi auknum fólksfjölda til að verja kerfið sem við höfum byggt upp. Við verðum líka að spyrja okkur: Erum við að fá of marga sem koma frá menningarheimum þar sem mannréttindi og jafnrétti eru ekki virt og þar sem viðhorfin eru mjög ólík okkar eigin gildum? Vegna stefnuleysis okkar í málaflokknum hafa glæpagengi náð hér fótfestu í miklum mæli og hlutfall erlendra fanga er gríðarlega hátt. Ég fagna því að ríkisstjórnin sýni loksins merki um stefnubreytingu í þessum málum og taki loks undir áhyggjuraddir okkar í Miðflokknum á umliðnum árum. Við í Miðflokknum munum vitaskuld styðja við allar góðar úrbætur en til að ná stjórninni aftur þarf að taka miklu stærri skref en nú eru boðuð.
Nú hefjum við nýtt þing eftir að síðasta þingi lauk með því að forseti Alþingis tók þá afdrifaríku ákvörðun að beita 71. gr. þingskapalaga. Það var ekki tilviljun því að áður en umræðan hófst lá fyrir minnisblað um beitingu þessa ákvæðis sem skýrði þá staðreynd að þingleg meðferð var virt að vettugi, lítið tillit tekið til umsagna, engin alvöruumræða frá meiri hlutanum og óvönduð lagasetning varð að veruleika. Þetta er hættulegt fordæmi. Þingræði snýst ekki um að stjórnarandstaðan fari í fjögurra ára frí þegar nýr meiri hluti er myndaður. Þingræðið snýst um að veita aðhald og tryggja vandaða lagasetningu. Ef þetta aðhald er tekið úr sambandi munu mál koma verr undirbúin frá ráðherrum, meirihlutaþingmenn sjá ekki tilgang með því að mæta í umræðuna og hagaðilar missa trú á að umsagnir þeirra verði teknar til skoðunar. Það á að vera hvati fyrir framkvæmdarvaldið að undirbúa mál það vel að ekki þurfi að koma til málþófs. Í ljósi ummæla ráðherra ríkisstjórnarinnar þess efnis að þau útiloki ekki beitingu ákvæðisins aftur þá minni ég á að það er forseti þingsins, alls þingsins sem tekur slíka ákvörðun en ekki framkvæmdarvaldið.
Kæru landsmenn. Hvort sem þið styðjið þessa ríkisstjórn eða ekki og hvort sem þið studduð veiðigjöldin eða ekki þá er ástæða fyrir því að forsetar hafa ekki viljað beita þessu ákvæði nema í algjörum neyðartilfellum því að ríkisstjórnir koma og ríkisstjórnir fara og flest viljum við standa vörð um lýðræðið, virða þrískiptingu ríkisvaldsins og vanda lagasetningu. Við viljum ekki einræði í íslenskri stjórnmálasögu, sama hverjir sitja í ríkisstjórn.
Forseti. Við í Miðflokknum munum áfram styðja góð mál en berjast gegn slæmum málum. Við munum ekki verða klappstýrur (Forseti hringir.) fyrir þessa ríkisstjórn heldur veita aðhald og standa vörð um lýðræðið, velferðarkerfið og þau gildi sem Ísland byggir á. (Forseti hringir.) Vöndum okkur. Við erum að taka ákvarðanir um framtíð Íslands og hvernig samfélag við viljum byggja fyrir komandi kynslóðir. — Góðar stundir.