157. löggjafarþing — 2. fundur,  10. sept. 2025.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:57]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Beint samtal við þjóðina er hornsteinn í mínu starfi. Til að fá skýra mynd af þeim málum sem brenna á íbúum og sveitarstjórnarfólki hef ég undanfarnar vikur haldið opna samráðsfundi í öllum landshlutum. Krafa um nútímavæðingu innviða er hávær hvert sem farið er. Krafa er um bundið slitlag á malarvegi, sterkt símasamband, styttri vegalengdir og fleiri jarðgöng. Krafa þjóðarinnar er skýr og hún er: Þjóðarátak í uppbyggingu innviða.

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins svarar þessu ákalli og hefur lagt fram skýra stefnu um uppbyggingu innviða í landinu. Fjárfesting í innviðum er ein öruggasta leiðin til að auka samkeppnishæfni, verðmætasköpun og framleiðni. Góðir innviðir bæta lífskjör. Þetta eru ekki ný vísindi. John F. Kennedy Bandaríkjaforseti komst vel að orði þegar hann sagði: „Bandaríkin eru ekki rík þjóð með góða vegi. Bandaríkin eru rík þjóð vegna góðra vega.“

Hér á landi blasir við vegakerfi sem fámenn þjóð í stóru landi byggði af miklum krafti á sínum tíma. Hvað hefur orðið um þennan kraft hjá síðustu ríkisstjórnum? Undanfarin ár hefur fjárfesting í samgönguinnviðum verið einna minnst hér á landi meðal OECD-ríkja sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Í samkeppnishæfnisskýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins voru íslenskir samgönguinnviðir metnir einn veikasti hlekkurinn í samkeppnishæfni landsins. Á sama tíma hefur álag á vegakerfið stóraukist, m.a. vegna fjölgunar ferðamanna og stóraukinna þungaflutninga. Kraftleysi síðustu ríkisstjórna þegar kemur að innviðum er orðið að verulegu vandamáli í landinu.

Með nýrri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins horfum við nú hins vegar til betri framtíðar. Ríkisstjórnin samþykkti í sumar að veita strax 3 milljarða kr. viðbótarframlag til viðhalds á vegakerfinu. Það jafngildir um 25% hækkun miðað við framlög síðustu ára. Framkvæmdirnar hafa skilað sér í betra ástandi vega og hefur jákvæð endurgjöf borist til Vegagerðarinnar víðs vegar um land. Þjóðin finnur muninn strax og finnur að það skiptir máli hver stjórnar.

Í fjármálaáætlun sem samþykkt var í sumar fyrir árin 2026–2030 er gert ráð fyrir enn frekari sóknarleik í þessum mikilvæga málaflokki. Ríkisstjórnin mun sækja fram með nýrri og metnaðarfullri samgönguáætlun sem verður lögð fram í haust. Framlag til viðhalds vega mun einnig hækka verulega og nema allt að 5,5 milljörðum kr. á hverju ári. Þetta jafngildir um 45% hækkun frá því sem verið hefur.

Ríkisstjórnin ætlar að hefja kraftmiklar framkvæmdir í samgöngumálum um allt land. Eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar er að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð. Engar framkvæmdir hafa verið í málaflokknum síðan Dýrafjarðargöng voru opnuð árið 2020 eða fyrir fimm árum síðan. Vert er að spyrja: Hvernig má það vera? Hvernig má það vera að við höfum ekki verið að grafa jarðgöng síðastliðinn fimm ár? Þessi ríkisstjórn ætlar sér að hverfa af braut framkvæmdaleysis og stefnuleysis í jarðgangagerð. Að öllu óbreyttu hefjum við nýjar jarðgangaframkvæmdir af fullum þunga árið 2027.

Ég vonast til þess að landsmenn upplifi að nú sé sleginn nýr tónn í málefnum innviða á Íslandi. Öflug uppbygging innviða er forsenda fyrir jákvæðri byggðaþróun, stærri og sterkari sveitarfélögum og bættum lífskjörum í landinu öllu.

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Ríkisstjórnin er hér til að svara ákalli þjóðarinnar, sýna árangur í verki og bæta ástand einnar verðmætustu eignar þjóðarinnar sem vegakerfið er til framtíðar.