fjárlög 2026.
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026. Þetta er fyrsta mál þessa þings og jafnframt fyrsta fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar. Frumvarpið er reist á grunni fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 og setur umgjörð um ríkisfjármálin á komandi ári.
Það krefst varfærni, festu og aga að snúa við þeim hallarekstri sem hefur einkennt ríkisfjármálin mörg undanfarin ár. Staðan er líka sú að verðbólga mun varla hjaðna eða vextir lækka nema fólk treysti efnahagsstefnunni og forsendum hennar. Það mikilvægasta sem fjármálaráðherra og ríkisstjórn geta lagt af mörkum er að setja skýr og metnaðarfull markmið í fjármálastefnu sinni, fjármálaáætlun og fjárlögum, og standa við þau.
Forseti. Þú nærð ekki stöðugleika án jafnvægis. Jafnvægi í fjárlögum undirbýr jarðveginn fyrir minni verðbólgu og lægri vexti. Um leið búum við til nauðsynlegt svigrúm til að sinna brýnum verkefnum og þjónustu sem við erum meira og minna sammála um að þurfi til að reka gott samfélag. Samfélag sem hefur þrótt til að takast á við innri og ytri áföll. Allt þetta þarf til þess að heimilin og fyrirtækin geti dafnað í umhverfi sem er eins fyrirsjáanlegt og kostur er, sveiflur ekki miklar og verðbólga og vextir innan skynsamlegra marka.
Áherslurnar eru skýrar: Sjálfbær afkoma, agi í útgjöldum, gegnsæ tekjuöflun og forgangsröðun sem styður við verðstöðugleika, lægra vaxtastig og bætt lífskjör.
Forseti. Umskipti í stefnu bandarískra stjórnvalda í utanríkisviðskiptum hafa aukið til muna óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum. Hagkerfið stendur líka frammi fyrir áskorunum vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem sterkt gengi krónunnar hefur á samkeppnishæfni útflutningsfyrirtækja. Þrátt fyrir það eru efnahagsumsvif á Íslandi með ágætum og hagvaxtarhorfur betri en í nágrannaríkjunum. Inn í það spilar að atvinnuvegir þjóðarinnar verða sífellt kraftmeiri og fjölbreyttari og ríkisfjármálin eru loks á réttri leið.
Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem liggur til grundvallar fjárlagafrumvarpinu gerir ráð fyrir 2,2% hagvexti í ár og 2,6% hagvexti árið 2026. Sá hagvöxturinn liggur nærri metinni vaxtargetu hagkerfisins til lengdar.
Þó að margt horfir til betri vegar hefur lækkun verðbólgu undanfarna mánuði valdið vonbrigðum. Innlendur verðbólguþrýstingur sem rekja má til húsnæðismarkaðar, launaþróunar og hárra verðbólguvæntinga er of mikill. Þessar efnahagsaðstæður krefjast festu og varfærni í fjármálum sem styðja um leið peningastefnu Seðlabankans. Þjóðhagslegt hlutverk ríkisfjármálanna felst að stóru leyti í því að tryggja viðnámsþrótt ríkisfjármála og samfélagsins í heild gagnvart ófyrirséðum áföllum og áskorunum framtíðar. Það er gert með því að bæta afkomu ríkisins og lækka skuldahlutfall hans samhliða fjárfestingu í arðbærum innviðum.
Forseti. Okkur hefur áunnist býsna margt á þessum fyrstu átta mánuðum í ríkisstjórn. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til umbóta og hagræðingar hafa þegar haft jákvæð áhrif á horfur í efnahagslífinu og aukið stöðugleika ríkisfjármálanna. Hér er ég að tala um margar og fjölbreyttar aðgerðir til að einfalda stjórnsýslu, sameina stofnanir og ná betri stjórn á starfsemi ríkisins í heild. Þar má nefna sérstaklega tillögur frá almenningi, fyrirtækjum og stofnunum um bætta forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, aðhald hjá aðalskrifstofum ráðuneyta og fækkun stjórnsýslunefnda. Þessar sértæku aðgerðir munu skila tæpum 13 milljörðum í sparnað á næsta ári.
Stöðugleikareglan sem Alþingi innleiddi í sumar er hér lykilatriði. Ég vil nota tækifærið og þakka þinginu fyrir mikinn stuðning í því máli. Með stöðugleikareglunni höfum við tryggt að ríkisútgjöld verði ekki aukin umfram vöxt verðmætasköpunar í hagkerfinu. Við höfum komið á fyrirkomulagi sem frelsar stjórnmálamenn framtíðarinnar frá því að freistast til að verja tímabundnum tekjum í varanleg útgjöld en það kann aldrei góðri lukku að stýra eins og við vitum allt of vel.
Í frumvarpinu er birt varfærin en skýr heildarmynd af afkomu ríkissjóðs árið 2026. Gert er ráð fyrir um 15 milljarða halla, eða 0,3% af vergri landsframleiðslu, sem er góður árangur ef við setjum það í samhengi við 62 milljarða halla á síðustu fjárlögum og 26 milljarða halla sem gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun sem samþykkt var í sumar. Þetta er til marks um virkni stöðugleikareglunnar og ásetning stjórnvalda til að skapa hér skilyrði fyrir lækkun vaxta.
Afkoman batnar um 0,1% af vergri landsframleiðslu milli ára frá uppfærðum horfum yfirstandandi árs. Frumjöfnuður er jákvæður um rúmlega 77 milljarða, eða 1,5% af vergri landsframleiðslu, sem endurspeglar styrkari undirliggjandi rekstur að frádregnum vaxtagjöldum. Þetta er bati frá yfirstandandi ári og mikilvægt skref áleiðis að hallalausum fjárlögum árið 2027. Skuldahlutfall ríkissjóðs er áætlað um 37% af vergri landsframleiðslu í árslok 2026 og horfir til lækkunar á næstu árum. Skuldir ríkissjóðs lækka milli ára og frumgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu fara lækkandi þrátt fyrir auknar fjárfestingar.
Tekjuhliðin er stöðug og byggir á traustum forsendum. Tekjur ríkissjóðs aukast lítillega sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Heildartekjur á rekstrargrunni eru áætlaðar 1.600 milljarðar kr., rétt rúm 30% af vergri landsframleiðslu, þar nema skatttekjur og tryggingagjöld um 1.400 milljörðum.
Frumvarpið felur í sér hóflegar og markvissar umbætur á skattkerfinu sem er bæði flókið og kostnaðarsamt. Einföldun skapar svigrúm til að gera það hagkvæmara og sanngjarnara á heildina litið. Einnig er unnið áfram að innleiðingu 15% alþjóðlegs lágmarksskatts á stór fjölþjóðleg fyrirtæki í samræmi við áherslur og leiðbeiningar OECD.
Fyrr á árinu voru samþykkt lög um breytingu á aflaverðmæti í reiknistofni veiðigjalds. Áhrif breytinganna munu koma skýrar fram þegar fjárhæðir veiðigjalds árið 2026 verða birtar í desember næstkomandi og verður áætlun veiðigjalds endurskoðuð í kjölfarið. Þá er jöfnunargjald sem dreifiveitur greiða hækkað og er það nauðsynlegt til að ná fullri jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku á árinu 2026.
Stærsta skattkerfisbreyting ársins felst í kerfisbreytingu á gjaldtöku af ökutækjum og eldsneyti. Það er kílómetragjald til að bregðast við tækniþróun í samgöngum og áhrifum sem hún hefur haft á mikilvæga tekjustofna. Samhliða falla niður eldri eldsneytisgjöld, þ.e. vörugjöld af bensíni og olíugjald á dísilolíu. Þá verður kolefnisgjald hækkað til að ýta undir græn orkuskipti. Þetta er fyrirsjáanleg og nauðsynleg aðlögun en ekki nýjar, óvæntar breytingar. Markmiðið er festa og gegnsæi í tekjustofnum en ekki auknar álögur umfram þörf. Eftir stendur að heildartekjur ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu breytast óverulega milli ára.
Forseti. Á gjaldahlið ríkissjóðs er aðhaldið skýrt. Raunvöxtur rammasettra útgjalda er innan þeirra marka sem talin eru heppileg til að styðja við verðlagsstöðugleika og heildaraðhald næsta árs. Hagræðingaraðgerðir nema 15 milljörðum kr. og er markmið þeirra að draga úr ríkisumsvifum, treysta stöðu ríkissjóðs og vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Umbætur í opinberum innkaupum eru í markvissum farvegi, ferlar eru einfaldaðir og stafræn þjónusta nýtt betur. Það sparar ríkinu fjármuni en sparar líka almenningi bæði tíma og útgjöld þegar kemur að samskiptum við stofnanir ríkisins.
Heildarútgjöld ríkisins eru áætluð tæpir 1.700 milljarðar á árinu 2026. Það er 126,5 milljarða aukning frá fjárlögum ársins 2025 en þar af eru 43,5 vegna áætlaðra launa-, gengis- og verðlagsbreytinga. Að þeim frátöldum hækka heildarútgjöld ríkisins um 83 milljarða, eða sem nemur 5,4% af landsframleiðslu. Frumgjöld nema 27,9% af landsframleiðslu og lækka hlutfallslega milli ára þótt forgangsverkefni fái aukið svigrúm. Forgangsröðun fjárfestinga styður framleiðniaukningu hagkerfisins. Heildarframlög til fjárfestinga og fjármagnstilfærslna nema um 146,8 milljörðum kr., sem er 2,8% af vergri landsframleiðslu.
Í samgöngum er ráðist í markvisst viðhaldsátak til að lækka viðhaldsskuld, endurbæta slit og burðarlög og bæta öryggi. Framlag til vegaviðhalds og vetrarþjónustu hækkar. Áfram verður unnið að samgöngusáttmála, undirbúningi Sundabrautar, Ölfusárbrúar og að Vesturlandsvegi, svo fá dæmi séu nefnd.
Heilbrigðismál njóta einnig forgangs í þágu öryggis og aðgengis íbúa. Framkvæmdir við nýjan Landspítala halda áfram með myndarlegum fjárveitingum á árinu 2026 og ráðist er í uppbyggingu nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri af fullum krafti með 3 milljarða framlagi. Báðar þessar framkvæmdir munu styrkja getu heilbrigðiskerfisins til að þjónusta fólkið í landinu. Þá höfum við fjármagnað uppbyggingu yfir 100 hjúkrunarrýma víðs vegar um landið til að stytta bið og bæta búsetuskilyrði eldra fólks. Geðheilbrigðisþjónusta er efld með sértækum úrræðum fyrir börn og aldraða, geta til meðferðar fíknivanda er aukin og réttaröryggisdeild á Kleppi stækkuð.
Breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem tóku gildi 1. september 2025 hækka útgjöld ríkissjóðs um 14,3 milljarða á næsta ári sem kemur til viðbótar hækkun upp á 4,4 milljarða á þessu ári og 4 milljarða framlagi sem áður hafði verið veitt þegar fyrstu skrefin í átt að kerfisbreytingunni voru tekin.
Öryggismál og stoðir réttarríkisins eru jafnframt styrkt. Hjá lögreglu er fjölgað um 50 stöðugildi til að efla sýnileika, viðbragð og getu til rannsókna. Landhelgisgæslan er efld í samræmi við aukin verkefni. Ný úrræði í fangelsismálum og öryggisvistun tryggja samfelld og örugg ferli innan þessa málaflokks. Snjóflóðavarnir eru efldar og stefnt að opnun brottfararmiðstöðvar fyrir vistun útlendinga sem bíða brottflutnings úr landinu.
Forseti. Í ræðu minni hef ég einungis nefnt nokkur dæmi þess að í fjárlagafrumvarpinu er ekki eingöngu gætt að hóflegum vexti útgjalda ríkissjóðs heldur einnig hugað að réttri forgangsröðun útgjalda til þess að stuðla að vaxandi velsæld íbúanna og getu hagkerfisins til verðmætasköpunar. Frumvarpið er hófstillt en í samræmi við metnaðarfull markmið ríkisstjórnarinnar. Það tryggir jákvæðan frumjöfnuð og heldur heildarhalla í skefjum. Tekjuáætlun er varfærin og byggir á skýrum forsendum. Gjaldahliðin fylgir aðhaldsramma og ný útgjöld eru fjármögnuð með tilfærslum og sparnaði. Þessi nálgun í frumvarpinu stuðlar að hjöðnun verðbólgu og lægra vaxtastigi. Hún styður við bætt lífskjör og tryggir að við eigum fyrir þeim. Tilgangur ríkisfjármálanna er, þegar öllu er á botninn hvolft, að veita þjónustu. Við munum tryggja að ríkið geti sinnt því hlutverki án þess að börnin okkar þurfi að borga brúsann.
Forseti. Ég legg til að frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 verði vísað til 2. umræðu og hv. fjárlaganefndar til ítarlegrar umfjöllunar.