157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans athugasemdir. Ég er að sjálfsögðu honum ekki sammála og tel þvert á móti að fjárlagafrumvarpið sýni skýrt þann vilja ríkisstjórnarinnar að skila hallalausum fjárlögum á árinu 2027. Ég minnist þess nú reyndar að það hafi verið dregið mjög í efa þegar ég mælti hér fyrir fjármálaáætlun fyrr, en núna virðast allir telja að það sé fyrirhafnarlítið að ná því strax. Þingið hefur auðvitað hlutverk í því að bæta þessi fjárlög og ég myndi fagna því mjög ef þingmenn lægju ekki á þeim hugmyndum í vinnslu þessa þingmáls inni í nefnd. Við erum ríkisstjórn samstöðu og sátta með skýr markmið og ef við erum sammála um markmiðin, eins og mér heyrðist hv. þingmaður halda fram, þá er víst ábyggilega verkefni hér sem við getum unnið saman.