fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það eru nokkur atriði sem verður að nefna hér við upphaf þessarar umræðu. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að tilgreina sérstaklega í ræðu sinni heildarútgjöld ríkissjóðs því að það er orðinn einhver plagsiður hér við 1. umræðu fjárlaga að sú tala sé ekki nefnd. En það er nú einmitt þannig að heildarútgjöldin á þessu ári verða tæpir 1.700 milljarðar og vaxa þau um tæp 8% á milli ára. Eins og ráðherra kom inn á, þegar búið er að taka tillit til launaþróunar, gengisþróunar og verðlagsbreytinga, er til viðbótar við það 5,4% vöxtur í ríkisútgjöldum á milli ára. Ráðherra kom inn á það að útgjaldavöxturinn á milli ára sé 126,5 milljarðar. Í fyrra var sama tala, í fjárlögum sem voru samþykkt í miðri kosningabaráttu, þegar freistnivandinn er mestur, 61 milljarður. Þetta er rúmlega tvöföldun í útgjaldavexti á milli ára í milljörðum talið.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji þetta raunverulega vera þau skilaboð, hvað ríkisfjármál og ríkisútgjöld varðar, sem Seðlabankinn er að kalla eftir varðandi áframhaldandi mat á þróun vaxta hér á landi. Mig langar sömuleiðis að spyrja hæstv. ráðherra hvernig þessir 126 milljarðar skiptast á milli reksturs og fjárfestingar. Síðan langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hverjar heildartekjur af skattlagningu og gjaldtöku af akstri og ökutækjum verða á næsta ári og hver hækkunin er á milli ára þegar allir þeir liðir eru skoðaðir.