157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir en hann svaraði ekki spurningu minni sem sneri að því hver heildargjöld og skattar af akstri og ökutækjum verða á næsta ári samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi og hver hækkunin er. Eins og frumvarpið teiknar upp er hér á ferðinni gríðarleg hækkun á þessum sköttum og gjöldum milli ára sem leggst auðvitað á heimili landsins og fyrirtæki af fullum þunga. Það er dálítið sérstakt að hlusta á hæstv. ráðherra lýsa því hér að núverandi ríkisstjórn sé einhvern veginn bara áframhaldandi handlangari í verkefnum fyrri ríkisstjórnar, jafn ómöguleg og hún var á köflum. Hér hefur hæstv. ráðherra lýst því að ná eigi markmiði fyrri ríkisstjórnar um 1,7% skattlagningu á akstur og ökutæki af vergri landsframleiðslu á grundvelli stefnumörkunar fyrri ríkisstjórnar. Hér hefur hæstv. ráðherra lýst því að allar aðgerðir sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson gagnrýndi séu framhald af ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar. Það er eitthvað skrýtið í þessari framsetningu. Hér er ný ríkisstjórn að leggja fram sín fyrstu fjárlög og það er vísað í ákvarðanir fyrri stjórnar í öllum tilvikum. Hvaða endemis della er þetta, hæstv. ráðherra? Svo er hér talað um þessa stöðugleikareglu eins og hún sé að bjarga einhverju stórkostlegu. Hún ætti auðvitað ekki að skipta neinu máli gagnvart núverandi ríkisstjórn af því að núverandi ríkisstjórn er í fullum færum til að haga sér eins og stöðugleikareglan teiknar upp. Stöðugleikareglan er ekki að setja neinn þrýsting á núverandi ríkisstjórn. Þetta er allt einhver sýndarmennska og della.

Ég vil biðja hæstv. ráðherra að svara spurningu minni varðandi hverjir verða heildarskattar og gjöld á akstur og ökutæki á næsta ári, því að þetta er tala sem mér sýnist af lestri frumvarpsins vera að springa í loft upp.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að ávarpa ávallt forseta.)