fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra til hamingju með sín fyrstu fjárlög þó að ég hafi nú tekið eftir því þegar ég tók bókina að greinilega er aðhaldskrafan orðin víða því að það er búið að taka allan lit af bókinni. Ég vona að það endurspegli ekki innihaldið, að hún sé jafn litlaus að innan og að utan. En ég á eftir að sökkva mér betur ofan í það, virðulegur forseti.
Þetta eru ákveðin tímamót, að ný ríkisstjórn sé að leggja sín fyrstu fjárlög hér fram. Það hlýtur þá að líða að þeim tímapunkti í okkar störfum hér á Alþingi að hæstv. ríkisstjórn fari að tala um sín verk en ekki einhvern veginn að einblína í baksýnisspegilinn á þau verk sem fyrri ríkisstjórn vann. Mér finnst umræðan ansi oft hafa farið í hvað væri búið að gera en ekki hvað á að fara að gera. En nú er það alveg ljóst og liggur fyrir í þessu ágæta plaggi sem ég hlakka svo sannarlega til að kafa betur ofan í fjárlaganefnd núna í haust.
Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra að þeirri spurningu sem hv. félagar mínir komu aðeins inn á áðan. Það er varðandi jöfnuðinn eða hallalaus fjárlög. Miðað við þá tekjuaukningu sem er að verða milli 2025 og 2026, sem mér sýnist vera að slaga í 100 milljarða, í kringum 90 milljarða, af hverju var ekki farið í þá vegferð að styðja við stefnu og (Forseti hringir.) markmið Seðlabanka Íslands um að ná hér aðhaldi? Af hverju var ekki farið í það að ná niður þessum halla með þessa miklu tekjuaukningu?