157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:36]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka svarið og hrósa þingmanninum fyrir að skauta svona listilega fram hjá því að svara spurningunni, sem var hver? Jú, það hvernig við getum fjármagnað innviðaframkvæmdir. Ég var að vísa í frétt Morgunblaðsins frá í gær þar sem er dregið fram á grundvelli svars sem lagt var fram í sumar, spurningin var frá Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að öll síðustu ár hefur verið himinn og haf milli tekna af farartækjum og umferð og útgjalda til samgöngumála, þvert á það sem oft er haldið fram, segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu í gær. Hann rifjar upp að í sinni samgönguráðherratíð sýndi hann mikinn kjark, boðaði veggjöld og aðrar leiðir til að fjármagna innviði vegna þess að annars yrðu innviðafjárfestingarnar ekki nægar. Hann kallar eftir því að ný ríkisstjórn haldi áfram með þessar hugmyndir eða aðrar útfærslur. Og ég er bara að spyrja hvort aðrir í Sjálfstæðisflokknum hafi þennan kjark til þess að horfast í augu við þennan veruleika, tengja það hugsanlega við býsna góða útfærslu kílómetragjalda sem unnin var á síðastliðnu vori í nefnd og verður lögð aftur fyrir þingið. Hefur Sjálfstæðisflokkurinn eða þingmaðurinn e.t.v. aðrar útfærslur í huga heldur en samflokksmaður hans, Jón Gunnarsson eða vill þingmaðurinn ekki horfast í augu við þetta gat eða þá fjármuni sem þarf til að bæta innviði á Íslandi? Á að skauta bara alveg fram hjá því að svara þeim spurningum sem spurt er? Á bara að fara í einhvern popúlisma um að hafna öllum gjöldum tengdum umferð en gleyma að segja frá því að þá verður ekkert innviðaátak?

(Forseti (BHar): Forseti vill minna hv. þingmenn á að vísa til annarra þingmanna sem hv. þingmanna.)