fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ef við reynum að ramma inn skilaboðin í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi þá eru þau í fyrsta lagi það að hallarekstur ríkissjóðs verður nú loks stöðvaður með því að halda aftur af útgjaldavexti. Fyrir þetta má þakka. Hluti af því eru sértækar hagræðingaraðgerðir sem munu ná fram að ganga yfir allt tímabil fjármálaáætlunar, þ.e. ekki er gengið þannig til verka að gera þetta á einum degi eða einu ári heldur skipulega og af virðingu fyrir þeim verkefnum sem verið er að fjármagna með fjárlögum.
Í öðru lagi eru skilaboðin alveg skýr um að ríkissjóður eigi að styðja við vaxtalækkunarferli Seðlabankans og styðja við lækkun verðbólgu. Það er bæði gert með því að skila minni halla en líka með því að kynna fjárlög sem bera með sér yfirvegun og festu og byggja auðvitað á þeim umbótum í umgjörð fjárlaga sem innleiddar voru með breytingum á lögum um opinber fjármál og samþykkt fjármálaáætlunar síðastliðið vor.
Hér hefur verið talað um stöðugleikareglu sem var innleidd eftir töluverða yfirlegu og rýni á þeim valkostum sem komu til greina. Það er athyglisvert að frá því að þessi lög voru samþykkt og þessar breytingar voru gerðar þá hafa greiningaraðilar eins og OECD og lánsmatsfyrirtækin verið einum rómi um að þessar umbætur í umgjörð opinberra fjármála séu til góðs og horfurnar hafa batnað í mati þessara óháðu ytri aðila á lánshæfi ríkissjóðs. Þess vegna eigum við að spara okkur eitthvert sverðaglamur um þetta, nema einhver vilji rökstyðja það sérstaklega hvers vegna OECD eða þessi matsfyrirtæki hafi rangt fyrir sér í sínum dómi, sem er samhljóða afstöðu þingsins og ráðuneytisins frá því í vor.
En hverjar eru breiðu línurnar? Hverjar eru tölurnar? Það er rétt sem hér hefur verið sagt að á einhvern hátt, ef við förum bara upp úr skotgröfunum, má segja að allur þingheimur og kannski samfélagið hafi verið sammála um það að eftir útgjaldafrek ár sem einkenndust af Covid og eldhræringum á Reykjanesi erum við að taka stefnuna á minni fjárlagahalla, afgang og aðhald. En það sem verið er að gera í þessum fjárlögum er gott betur en það. Það sést þegar bornar eru saman áætlanir fyrri ríkisstjórnar og þau fjárlög sem hér eru lögð fram og fjármálaáætlunin frá því í vor. Í stað þess að gefa okkur allan áratuginn í að ná hallalausum fjárlögum stefnir núverandi ríkisstjórn og stjórnarmeirihluti á hallalaus fjárlög 2027. Ef við berum saman niðurstöðuna í fyrra, sem samkvæmt fjárlögum átti að vera 62 milljarðar, samkvæmt mati á ársreikningi sem er ein af tölunum í fjárlögunum, er 55 milljarðar, þá erum við að ná betri árangri í ár en þessar áætlanir gerðu ráð fyrir og við erum að leggja fram fjárlög sem miða við 15 milljarða halla en samkvæmt fjármálaáætlun fráfarandi ríkisstjórnar voru 39 milljarðar. Ég veit að þetta er mikið talnaflóð og erfitt að henda á því reiður en ef fólk ætlar að ná einhverju af þessu þá já, þá hafa þeir talað og stefnt að því að ná hallalausum fjárlögum. Það er verið að flýta því til 2027 af núverandi ríkisstjórn og stjórnarmeirihluta og það er verið að ná þessum árangri hraðar með því að stemma stigu við þróun útgjalda og beita skynsamlegu aðhaldi.
Þetta sést líka þegar skoðaðar eru skuldatölur. Í fyrra voru skuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu, sem er sá mælikvarði sem öll lönd heims nota til að bera saman skuldir sínar, 59,3%. Á næsta ári verða þær 50,9%; lækkunin er um 9%. Þetta er risaskref sem náðst hefur á fyrstu mánuðum þessarar ríkisstjórnar, m.a. með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem var farsæl, og það eru fréttir að þannig takist til varðandi sölu á ríkiseignum. En þetta skiptir líka máli, og fjárstýring og lánastýring ríkisins og umbætur í henni, vegna þess að vaxtagjöld ríkissjóðs eru um 125 milljarðar á ári. Á móti koma raunar vaxtatekjur og sumir telja arðgreiðslur líka á móti þessu en engu að síður vegur þetta þungt og hvert prósentustig skiptir máli fyrir ríkissjóð, alveg eins og fyrir heimili og fyrirtæki. Sú vaxtalækkun sem hefur orðið síðan í vetur, stýrivaxtalækkun, skilar meðalheimili um 50.000 kr. ábata miðað við meðallán á mánuði, eða yfir 500.000 kr. á ári. Það munar um minna.
Auðvitað má segja fyrir vikið að við hefðum viljað sjá vexti og verðbólgu fara enn þá hraðar niður fyrr og við þurfum að ræða hvort það séu kerfisbundnar ástæður sem að einhverju leyti valdi því; gjaldmiðillinn, umgjörð peningamála að einhverju leyti, og þá ræðum við það. En þessi fjárlög styðja við Seðlabankann í þessum markmiðum og eru umtalsvert framlag eins og fjármálaáætlunin, eins og umbæturnar á lögum um opinber fjármál og eins og sú yfirvegun og ábyrgð sem einkennir fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar.
Er þar með sagt að það bætist ekkert við inn í fjárlögin? Nei, svo er ekki. Við erum að tala um aukningu til Fæðingarorlofssjóðs. Við erum að auka framlög til framhaldsskóla vegna fjölgunar nemenda. Við erum að hækka frítekjumark ellilífeyrisþega. Við erum að bæta kjör öryrkja. Þetta er stór tala; 4,8 milljarðar. Við erum að hækka aldursviðbót og setja 3 milljarða í þjónustu við börn með flóknar þjónustuþarfir, mjög mikilvæg mál. Við erum líka að setja 2,5 milljarða í ný hjúkrunarrými, 3 milljarða í nýja legudeild við sjúkrahúsið á Akureyri, 1,5 milljarða til að styrkja meðferð við fíknisjúkdómi og við erum að styrkja geðþjónustu barna og aldraðra varanlega. 2,3 milljarðar fara til að styrkja heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa og á landsbyggðinni og það er framlag til reksturs öryggisvistunarrýma á geðsviði á Kleppi, sem er mikilvægt heilbrigðismál og raunar mannréttindamál.
Það er verið að auka framlög til vegamála um 7,5 milljarða og 1,2 milljarða til að efla löggæslu. Það á að hefjast handa við umbætur í fangelsismálum og setja 2 milljarða vegna öryggisvistunar ósakhæfra. Öryggis- og varnarmálin eru síðan alveg sérkapítuli út af fyrir sig sem verða eitt af verkefnum fjárlaganefndar að sökkva sér ofan í eins og svo margt annað. Og þó að þessi listi gæti verið lengri þá eigum við ekki að leyna því að fjárlögin byggja líka á aðhaldi, á ábyrgð og það kemur einhvers staðar niður. Við munum fá mjög margar ábendingar um það sem við förum yfir af sömu ábyrgð og hitt og metum í fjárlaganefndinni í vinnu okkar.
Markmiðin verða engu að síður að vera skýr: Við erum að styðja við lækkun verðbólgu og vaxta. Við erum að sýna ábyrgð í meðferð opinbers fjár. Við erum að fylgja eftir umbótum í umgjörðinni frá í vor. Við erum að ná markmiðum fjármálaáætlunar, ná markmiðum ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum og stuðla að því að við getum farið að hefja aftur vaxtarskeið þar sem við fjárfestum í innviðum og öryggi fyrir fólk um land allt.