157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:54]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þetta ágæta andsvar sem gefur mér kjörið tækifæri til að fara yfir, eins og ég gerði í ræðu minni, í hvaða umhverfi við erum að vinna. Við erum að vinna á grundvelli laga um opinber fjármál og þeirra umbóta sem þar voru gerðar í vor. Við erum að vinna á grundvelli fjármálaáætlunar sem var líka samþykkt í vor. Og við erum í raun að gera gott betur, við erum að ná meiri árangri. Þegar ég var að segja að við værum að flýta því hvenær fjárlög yrðu hallalaus þá er ég að draga fram að samkvæmt fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar átti að taka allan áratuginn í að ná hallalausum fjárlögum en þessi ríkisstjórn ætlar að ná þeim 2027. Það er mikið fagnaðarefni.

Í þessum fjárlögum er hallinn minni, 15 milljarðar, en átti að vera 39 milljarðar hjá síðustu ríkisstjórn í sömu fjárlögum. Þetta er betri árangur. Við erum að ná þangað sem við viljum öll komast hraðar heldur en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir vegna ábyrgðar, aðhalds og lausna sem m.a. var leitað til þjóðarinnar eftir hugmyndum um. Þetta hefur mælst vel fyrir. Þetta er gott. Ég veit að það getur verið pirrandi en við eigum bara að gleðjast yfir því saman að við séum þá á þessari réttu leið. Sama varðandi skuldirnar. Við erum að fara úr 59% af landsframleiðslu í fyrra í rúm 50% af landsframleiðslu á næsta ári. Einhver gæti sagt: Ég hefði gert þetta miklu betur. En þetta er gríðarlegur árangur og við getum verið sammála um það þó að við getum tekist á um annað. Þannig að mér finnst það ekki trúverðugt að reyna að gera lítið úr því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Þvert á móti er það risaskref í rétta átt.