fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þetta andsvar. Hér er spurt um þá aðgerð að greiða séreignarsparnað inn á fasteignalán. Í spurningunni fólst hver mín afstaða væri til þess út frá stöðunni á húsnæðismarkaði. Þessi aðgerð beinist gegn þeim sem eiga þegar húsnæði frekar en þeim sem eru að koma inn á markaðinn, gagnvart fyrstu kaupendum, þeir fá áfram að nota séreignarsparnaðinn í þetta. Ég skil það svo að það sé stefna þessarar ríkisstjórnar eins og raunar hinnar fyrri vegna þess að þetta úrræði fyrir alla átti að renna út um síðustu áramót. Það var framlengt af síðasta stjórnarmeirihluta en ekki varanlega heldur bara til eins árs. Og hvers vegna var nú það? Jú, það var rökstutt með þeim hætti að þetta væri ómarkviss ráðstöfun (Forseti hringir.) opinberra fjármuna því að þetta felur í sér skattafslátt, vegna þess að það rynni fyrst og fremst, að 80% leyti, til þriggja tekjuhæstu tíundanna. Það held ég að hafi verið rökin fyrir ári síðan og það eru þung rök enn þá. En við getum skoðað þessi mál (Forseti hringir.) og fengið þessar tölur í fjárlaganefnd við umfjöllun málsins.