157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:00]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar til að spyrja hv. þingmann út í atriði sem hann nefndi í blábyrjun hennar þar sem hann sagði, með leyfi forseta, að með þessu frumvarpi sé haldið aftur af útgjaldavexti. Útgjaldavöxtur á milli ára er 126 milljarðar. Það stendur í frumvarpinu. Útgjaldavöxtur á milli ára í fyrra var 61 milljarður. Getur hv. þingmaður útskýrt hvernig hann fær það út að haldið sé aftur af útgjaldavexti með þessu frumvarpi þegar útgjaldavöxturinn á milli ára er rúmlega 100% í milljörðum talið?