157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:01]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir ágætissvar. Það er auðvitað hægt að fá greiningu á þessu en ég hygg að þessar breytingar liggi að stórum hluta í þeim launahækkunum sem samið var um í kjarasamningum og koma þannig inn í mat á fjárveitingum til meira eða minna allra stofnana ríkisins. Það er sjálfsagt að fá nánari greiningu á þessu en það er einfaldlega staðreynd að í frumvarpinu er aðhald. Það er gerð aðhaldskrafa á grundvelli fjármálaáætlunar til allra málaflokka. Ráðuneytunum ber að koma sér fyrir inni í þeim stakki sem þar er sniðinn og það skilar þeirri niðurstöðu að hallinn er að minnka hraðar en ráð var fyrir gert. Við færumst nær því að leggja fram hallalaus fjárlög, tökum ekki allan áratuginn í það heldur ætlum við að gera það 2027. Þess vegna eigum við að geta staðið saman um stóru línurnar þó að við tökumst á um ýmislegt annað, sem heitir jú líka bara mismunandi pólitík og er sjálfsagt mál.