fjárlög 2026.
Frú forseti. Við ræðum hér fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar. Ég verð að segja að fyrstu viðbrögð eru þeirrar gerðar að það er ekki hægt að lýsa öðru en vonbrigðum með það aðhaldsleysi sem fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir teiknar upp. Það má segja að frumvarpið eins og það liggur fyrir ýti undir auknar verðbólguvæntingar sem er þvert á það sem ætti að vera markmiðið og er sagt að sé markmiðið. Við sjáum hér útgjaldavöxt á milli ára rúmlega tvöfaldast í milljörðum talið, úr 61 milljarði á milli ára í fyrra í 126 milljarða á milli ára núna. Þetta er rúmlega tvöföldun. Svo koma hér þingmenn í pontu og halda því fram að hér sé haldið aftur af útgjaldavexti þegar hann er að tvöfaldast á milli ára. Viðmiðunarpunkturinn sem ég nota í þessu eru fjárlög sem voru samþykkt í miðri kosningabaráttu og þá er nú freistnivandinn ansi drjúgur.
Hér hefur komið fram að þegar tekið hefur verið tillit til leiðréttinga vegna launa, gengis og verðlagsbreytinga þá sé enn 5,4% hækkun á milli ára. Nafnhækkunin er tæp 8% en 5,4% standa eftir þegar búið er að taka tillit til launa, gengis og verðlagsbreytinga. Það er langt umfram mannfjöldaþróun og annað slíkt. Þetta eru bara þenslufjárlög. Þetta eru fjárlög sem munu ýta undir auknar verðbólguvæntingar á markaði, sem síðan ýtir undir verðbólgu, sem lokar á það að vextir lækki hér eins og svo nauðsynlega er þörf á. Þetta eru gríðarleg vonbrigði, virðulegur forseti. Ef það var eitthvað eitt sem ég taldi að þessi ríkisstjórn sem lýsir sér sem verkstjórn myndi gera þá var það að hafa fyrstu fjárlög sín raunverulega aðhaldssöm með einhverjum skilaboðum um að þessi ríkisstjórn ætlaði að standa fyrir einhverri pólitík í þá veruna, sýna aðhald, raunverulega draga úr útgjaldavextinum. En hvað gerist? Útgjaldavöxturinn á milli ára er rúmlega tvöfaldur í milljörðum talið, úr 61 í 126,5. Svo kemur á daginn að af þessum 126,5 milljörðum eru ekki nema 15% að fara til fjárfestingar. 85% fara til rekstrar. Þetta eru aðhaldsfjárlögin sem er verið að leggja fyrir okkur. Í þessu er ekkert aðhald. Í þessu er hvati til aukinnar verðbólgu og verðbólguvæntinga. Það skýrir þau vonbrigði sem ég get ekki annað en lýst hér gagnvart því frumvarpi sem hér er lagt fram.
Mig langar að koma stuttlega inn á gjaldtöku á akstur og ökutæki. Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra í andsvari hér áðan og fékk ekki svar en heildartekjur af akstri og ökutækjum verða 83 milljarðar á næsta ári, 83.000 milljónir. Hækkunin á milli ára, af því ég spurði hæstv. ráðherra en fékk ekki svar, er 11 milljarðar í aukna gjaldtöku á akstur og ökutæki. Það segir hér í töflu 4.2 á bls. 121: Annars vegar er það kílómetragjald vegna notkunar bifreiða upp á 3,3 milljarða og endurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis upp á 7,5 milljarða. Í ljósi þess að hæstv. ráðherra situr hér í salnum og er í fullum færum til að koma í andsvar kjósi hann svo, eða eftir atvikum í ræðu síðar sem fer yfir þetta, þá langar mig að biðja hæstv. ráðherra að útskýra með nákvæmari hætti hvernig þessi tæplega 11 milljarða hækkun birtist og kemur fram, því þetta er gríðarleg skattahækkun á akstur og ökutæki í landinu. Þetta mun bitna mest á þeim hlutfallslega sem hafa lægstar tekjurnar. Það er þannig. Ég bara skil ekki að Flokkur fólksins til að mynda gúteri þessa nálgun hvað varðar skattlagningu á akstur og ökutæki. Það verður að gera okkur þingmönnum mögulegt að glöggva okkur betur á þessari stöðu því þetta er slík breyting á milli ára. Það má ekki gleyma því að því var flaggað hér áður að kílómetragjaldið yrði bara kerfisbreyting, á núlli, það yrði ekki viðbótargjaldtaka á almenning og fyrirtæki vegna þess. Nú er allt önnur mynd að birtast, 11 milljarðar á ári í aukna skatta og gjöld af akstri og ökutækjum.
Það eru síðan, af því að tíminn er knappur hérna, atriði sem verður að skoða sérstaklega. Ég vil nefna markaðsgjaldið sem er tekjustofn sem er innheimtur með tryggingagjaldi á fyrirtæki, skattur á laun sem hefur gengið til Íslandsstofu til erlendrar markaðssetningar. Nú á að slíta þarna á milli og mér sýnist sem svo að markaðsgjaldið sem fyrirtæki borga eigi að haldast óbreytt en tekjur Íslandsstofu af því lækki þannig að þarna verði eftir í námunda við 100 milljónir á ári í ríkissjóði. Af hverju, hæstv. ráðherra, er ekki bara tryggingagjaldið lækkað sem þessu nemur?
Mig langar að nefna hér stuttlega atriði sem hefur verið nefnt sömuleiðis og bara í samhengi við það að ég sé ekki nein merki þess í þingmálaskrá að þarna eigi að ráða bragarbót á. Húsnæðismálin hafa verið nefnd hérna. Þau er ekki hægt að ræða af neinu viti nema við ræðum sömuleiðis vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins sem voru römmuð inn á grundvelli forsendna sem hafa allar brotnað og það hratt og illa. Það er eitthvert tómahljóð í því, þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar halda því fram að hér eigi nú aldeilis að gera gangskör í húsnæðismálum núna sem hefur haft þann verðbólguþrýsting sem raunin er á undanförnum misserum og árum, ef sá fíll í stofunni fæst ekki ræddur. Þannig að ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra sem á þetta hlustar til að skoða þetta heildstætt því án lausnar í þessum efnum næst enginn árangur með hitt snurfusið.
Það eru hér áform um hækkun jöfnunargjalds á flutning raforku. Frumvarpið þar að lútandi er ekki komið fram — því gæti hafa verið dreift í dag, ég hef ekki skoðað það, en það hefur ekki verið mælt fyrir því, augljóslega ekki. Þar þarf auðvitað að huga að því að slík gjaldtaka sé ekki að koma til fyrr en jöfnunin hefur verið samþykkt svo að þetta verði ekki enn einn nýi skatturinn inn í ríkissjóð án þess að neitt komi á móti annað en skattlagning í hítina.
Við verðum sömuleiðis að ræða þau sjónarmið sem viðhöfð hafa verið varðandi örorkubyrði lífeyrissjóða og með hvaða hætti horft er til þess núna að hverfa frá þeim jöfnunarstuðningi hvað mismunandi örorkubyrði sjóða varðar. Það eru sömuleiðis þættir sem við verðum að skoða. Hér verður lögð til 3,7% hækkun á þessum krónutölugjöldum. Það eru ótal krónutöluviðmið í kerfinu öllu sem eru ekki að hækka; frítekjumörk, grunnviðmið hin ýmsu. Þetta þarf fjárlaganefnd að fara kerfislega í gegnum og ná utan um það þannig að það sé tekin meðvituð ákvörðun um það hvort þessum viðmiðum sé breytt. Bara af því að ég er með það í kollinum held ég að tveggja milljóna viðmiðið á ári, hvað varðar heimild til útleigu á grundvelli 90 daga reglunnar í Airbnb, sé síðan 2013, bara svona nefnt af handahófi. Þetta þurfum við að fara í gegnum því þarna trappast upp skattlagning jafnt og þétt hljóðlega. Síðan verður auðvitað að ræða með ítarlegum hætti í hv. fjárlaganefnd með hvaða hætti breyting á reglum hvað samsköttun varðar hefur áhrif, sem hér er gert ráð fyrir að auki tekjur ríkissjóðs um 4 milljarða á ári.
Bara í grunninn vil ég segja þetta í lokin: Fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir núna er vonbrigði. (Forseti hringir.) Það er verðbólguhvetjandi en ekki -letjandi. Útgjaldavöxturinn á milli ára er alveg galinn. Það er rúmlega tvöföldun á milli ára. (Forseti hringir.) Þetta verður ríkisstjórnin að taka til sín og bregðast við með tillögum eftir vinnu nefndar sem raunverulega skila einhverju aðhaldi og sparnaði í ríkisrekstri. (Forseti hringir.) Við verðum að fara miklu betur með þá fjármuni sem við tökum af fólki og fyrirtækjum.