157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Það er rétt að breyting á vaxtakúrfum hefur ekki komið fram að neinu marki en þessa skoðun mína byggi ég á samtölum við nokkra markaðsaðila í gær sem höfðu þá haft einhvern tíma til að glöggva sig á þeim skilaboðum sem hér eru fram sett. Þar eru greinilega áhyggjur af því að Seðlabankinn meti þau skilaboð sem hér eru fram sett ekki með þeim hætti að þau séu þau sem vonast var eftir af ríkisstjórninni núna. Það verður auðvitað að hafa það í huga, eins og hæstv. ráðherra kom inn á í framsöguræðu sinni, að þegar búið er að taka tillit til launaþróunar, gengisþróunar og verðlagsbreytinga er enn eftir 5,4% útgjaldavöxtur á milli ára, 5,4%. Það er mun meira en t.d. fjölgun íbúa á milli ára og í rauninni er sama hvaða mælistiku við setjum á, 5,4% útgjaldavöxtur á milli ára þegar búið er að taka tillit til launa, gengisbreytinga og verðlagsbreytinga er gríðarlega mikill.

Telur hæstv. ráðherra 5,4% árlegan útgjaldavöxt umfram þessar leiðréttingar vera sjálfbæran í núverandi stöðu? Ég veit að ég er ekki í stöðu til að spyrja spurninga en ef hæstv. ráðherra myndi bregðast við þessu þá væri það áhugavert innlegg inn í umræðuna vegna þess að 5,4% útgjaldavöxtur á milli ára umfram verðlagsbreytingar og aðrar leiðréttingar og laun er gríðarlega mikill. Þetta mat mitt varðandi verðbólguvæntingar byggi ég á samtölum við markaðsaðila svo því sé til haga haldið. Ég óttast sem sagt að þetta mat og þessi tilfinning aðila eigi eftir að koma fram á næstu dögum og vikum.