157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir heiðarlegt svar. Ég vonaðist auðvitað til að fá bakgrunnsgreininguna en hana get ég væntanlega fengið frá þeim aðilum sem hv. þingmaður hefur rætt við. Nú vil ég aðeins leiðrétta það sem hér kom fram. Ég svaraði raunar hv. þingmanni í andsvörum vegna fyrstu ræðu minnar varðandi þessa liði sem hann telur saman í rúm 5% og nefndi þar við hann breytingar á vaxtagjöldum sem eru til komnar vegna uppgjörsins á ÍL-sjóði og síðan fjárfestingar.

Ég vil að síðustu segja að þegar ég mælti fyrir fjármálaáætlun hér fyrr í ár þá mætti ég nokkrum efasemdum um að þetta plan sem lagt var upp með þá væri raunhæft. Nú mæti ég öfugri gagnrýni sem er sú að ekki hafi verið gengið enn þá lengra en plan sem allir töldu að væri óraunhæft. Ég stend fast við það sem sagt hefur verið. Við munum skila ríkissjóði réttum megin við núllið á árinu 2027 eins og við höfum gert ráð fyrir.