157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég þarf nú að rifja upp ræður mínar í tengslum við fjármálaáætlun en ég man ekki eftir sérstakri gagnrýni frá mér varðandi það sem hæstv. ráðherra nefnir um að markmiðin sem þar voru fram sett hafi verið óraunhæf. Ég man aftur á móti mjög vel eftir harðri gagnrýni á gagnaskort sem þá var mjög yfirgripsmikill og staðfestur af fjármálaráði þegar umsögn þess barst um fjármálaáætlun síðasta þings. Það kom á daginn að við sem gagnrýndum þetta og bentum á í þeirri umræðu vorum í öllu falli ekki rangstæð hvað þá gagnrýni varðar heldur var það ríkisstjórnin og í þessu tilviki hæstv. fjármálaráðherra með framlagningu fjármálaáætlunar eins og hún birtist þar.

Ég vona að það sé rangt mat að frumvarpið hafi þau áhrif hvað varðar skilaboð, verðbólguvæntingar og annað þar að lútandi sem ég teiknaði upp áðan. Ég vona að þær áhyggjur mínar reynist rangar en ég óttast að svo verði ekki. Þegar sú mynd birtist hér í umræðunni í dag á fyrri stigum, að þetta sé allt með einum eða öðrum hætti bara framlenging af þeim verkefnum sem fyrri ríkisstjórn stóð að, þá setur að mér ugg því að ég hugsa að það hafi fáir gagnrýnt þá ríkisstjórn meira heldur en sá sem hér stendur og réttilega að mínu mati. Það kemur mér alveg stórkostlega á óvart hversu háa einkunn sú efnahagsstjórn er að fá hér í dag. (Forseti hringir.) En það kemur í ljós hvernig sú umræða og það mat hæstv. fjármálaráðherra eldist gagnvart vinnu við þessi fjárlög.