157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:44]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir góða spurningu. Á síðasta þingi lá fyrir frumvarp um víxlverkun og ein af ástæðunum fyrir því að það frumvarp náði ekki í gegn var að ekki hafði tekist að semja við lífeyrissjóðina á þeim tímapunkti um jöfnunarframlagið, sem eru þá helst þessir, ég hef kallað þá verkamannasjóði, þeir sem eru með háa örorkubyrði. Ég hef ekki verið í einhverjum samtölum á bak við luktar dyr en þá var virkt samtal í gangi á milli fjármálaráðuneytis og lífeyrissjóðanna um lausn á þessu máli. Ég reikna með því, ég veit það ekki, að það samtal sé enn þá í gangi og að það sé m.a. ástæðan fyrir því að víxlverkunarfrumvarpið var ekki lagt fram í þingmálaskrá, væntanlega til að reyna að ná einhverri heildstæðri lendingu í málinu vegna þess að það þarf vissulega að leysa, þar er ég hv. þingmanni sammála.