157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er tvennt sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Í fyrsta lagi er það eitt af málum á þingmálaskrá sem dagaði uppi í fyrra, vísitölubinding bóta við launaþróun. Mig langar til að spyrja hv. þingmann sem formann fjárlaganefndar hvort það sé búið að leggja mat á heildaráhrif þeirrar aðgerðar út frá gefnum forsendum en það er hægt að vinna það út frá fyrirliggjandi kjarasamningum og síðan sögulegum gögnum og þróun hagstærða.

Síðan langar mig sömuleiðis af sama meiði að spyrja hv. þingmann út í orð formanns Flokks fólksins, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, sem sagði eitthvað á þá leið að ef bætur færu fram úr lægstu launum yrði auðvitað að hækka lægstu launin. Í ljósi bakgrunns hv. þingmanns: Hver telur þú að verði viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar, verði það raunin að bætur fari fram úr lægstu launum?