157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:55]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þessa spurningu. Á síðasta þingi var mjög mikil umræða um kílómetragjaldið og áhrif þess á ólíka tekjuhópa, áhrif þess á ólík landsvæði, áhrif þess á t.d. þá sem búa á Suðurnesjunum, á hvernig bíl þeir aka, hvað þeir eyða miklu. Það var farið í gríðarlega mikla og ítarlega greiningarvinnu og haldnir hér kynningarfundir, umræðufundir þar sem vissulega bæði ég og fleiri, ekki síst í mínum flokki, viðruðum áhyggjur okkar af mögulegum áhrifum og sérstaklega á tekjulága. Ég sem mikill áhugamaður um húsnæðismál og með minn bakgrunn í verkalýðshreyfingunni — og ég hef séð á eftir mjög mikið af fólki flýja hátt húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu yfir til nágrannasveitarfélaga, bæði á Vesturlandi og Suðurlandi og svo á Suðurnesjum, og fólk væntanlega þá að sækja vinnu yfir lengri leið — hafði verulegar áhyggjur af þessu. En það áhrifamat sem okkur hefur verið kynnt og það sem við höfum farið í gegnum er með þeim hætti að ég hef minni áhyggjur, ég skal ekki segja engar en minni áhyggjur, af áhrifum kílómetragjaldsins á tekjulága en ég hafði áður. Það liggur alveg fyrir að Flokkur fólksins styður kílómetragjaldið í því formi sem það er sett fram.