fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Enn og aftur ætla ég að hefja ræðu mína á því að óska ráðherra og ríkisstjórn til hamingju með þetta frumvarp. Í því er margt gott og verður áhugavert að taka umræðu um það í fjárlaganefnd þar sem við munum fá betri yfirsýn og betri tilfinningu fyrir því nákvæmlega hvað hér er um að vera og hvað er verið að ræða um.
Ég sagði áðan í andsvari við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að nú væri komið að ákveðnum vatnaskilum hjá hæstv. ríkisstjórn. Nú fer að verða erfiðara að horfa í baksýnisspegilinn og benda á það sem fyrri ríkisstjórnir gerðu og skella einhvern veginn ábyrgðinni og skuldinni á þá sem þar voru við stjórnvölinn því að hér er komið fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar með hennar áherslum og stefnu. Það er náttúrlega þannig að þegar við leggjum fram frumvörp, hvort sem það er fjárlagafrumvarp eða önnur frumvörp hér á Alþingi, þá leggjum við þau að sjálfsögðu fram í okkar nafni og við erum ekkert bundin af því sem aðrar ríkisstjórnir hafa gert. Það er hægt að breyta og það er hægt að bæta og því lít ég svo á að það séu vatnaskil í dag hvað þetta varðar og fagna því.
Ég ætla svo sem ekki að vera hér með einhverja flugeldasýningu í þessari 1. umræðu fjárlaga. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við tökum góða og ígrundaða umfjöllun inni í nefndinni þannig að við fáum, eins og ég sagði hér áðan, það betur í fingurna hvernig nákvæmlega liggur í þessu frumvarpi. Þá munum við sjá hvar brestirnir eru og kannski sjáum við að eitthvað sem við höldum að í séu brestir í dag er kannski betri hnútum bundið en við áttuðum okkur á í fyrstu. Það breytir hins vegar ekki því, virðulegi forseti, að sú staða sem uppi er núna, að stýrivextir hafa lækkað úr 9,25% í 7,5 á árinu 2025, er grafalvarleg og að stýrivaxtalækkunarferlið sé stöðvað er alvarlegt sömuleiðis. Ég lít á það þannig, og ég hef heyrt það hér í ræðum þingmanna úr báðum örmum, stjórnar og stjórnarandstöðu, að þetta sé stærsta verkefnið sem fyrir okkur liggur á þinginu á þessum vetri, að ná niður vaxtastiginu og verðbólgunni því það er mesta áskorun heimila og fyrirtækja í landinu í dag. Um það held ég að við séum flest sammála. Þetta er stóra verkefnið og fjármálaáætlunin er tæki til þess.
Það eru gríðarlega miklir fjármunir að borga 125 milljarða í vexti á árinu 2026. Þetta er í raun og veru brjálæðisleg tala. Þess vegna þurfa stjórnvöld að senda skýr skilaboð um aðhald. Við þurfum meira aðhald. Og það sem ég, virðulegur forseti, vil kannski benda á í þessari 1. umræðu og minni fyrstu ræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir 2026 er að ég átti von á að aðhaldskrafan í frumvarpinu yrði hærri en 0,2%. Ég hélt að menn myndu stíga fastar til jarðar þar og tala þannig betur við peningamálastefnu Seðlabankans og stuðla þannig betur að áframhaldandi lækkun stýrivaxta. Ég hef áhyggjur af þessu. Ég hef áhyggjur af því að 0,2% aðhald sé ekki nægjanlegt. Ég sagði hér áðan í andsvari frá því að við lögðum fram frumvarp, mig minnir að það hafi verið 2023, þar sem var 0,3% aðhald og Seðlabankinn sagði að það væri hlutlaust, við næðum varla að vera með aðhaldssamt frumvarp með 0,3%. Þannig að það er erfitt að átta sig á því og erfitt að færa fyrir því rök að þetta frumvarp sé í raun aðhaldssamt þó að aðhaldið sé 0,2%. Ég hef áhyggjur af þessu. Það verður áhugavert að taka þessa umræðu betur í fjárlaganefnd, bæði við starfsmenn fjármálaráðuneytisins og aðra hagaðila, svo sem fjármálaráð og fleiri.
Sú tekjuaukning sem við blasir í þessu frumvarpi er vissulega gleðileg og miðað við fjárlög 2025 þar sem tekjurnar voru um 1.500 milljarðar þá fara þær í 1.591 og tekjuaukningin er að verða 91 milljarður á milli ára. Því held ég að það hefði verið góður bragur á því að taka hallann, þessa 15 milljarða sem eftir sitja árið 2026, og ná honum niður í 0, vegna þess að ég hef ákveðnar grunsemdir um það líka, virðulegur forseti, að miðað við þá tekjuaukningu sem við höfum séð í fjárlögum undanfarinna ára þá gæti niðurstaða ársins 2026 orðið í plús. Ég held að það hefði sýnt ákveðin skilaboð og ég held að það sé eitthvað sem fjárlaganefnd þurfi að skoða mjög vel í sinni vinnu, hvort það sé með einhverju móti hægt að koma þarna inn.
Ég vil aðeins ræða hér líka skuldirnar og ítreka það sem ég ræddi við hv. varaformann fjárlaganefndar, Dag B. Eggertsson áðan, þegar hann var að tala um að skuldirnar væru 59% og væru að fara niður í 50%, sem er alveg rétt hjá hv. þingmanni. En það er ruglingslegt, bæði fyrir okkur sem erum hér í þinginu og ég tala nú ekki um fólkið sem er að hlusta á okkur, þegar við erum að nota mismunandi tölur og grunn. Ég held að það sé eðlilegast að við notum þann grunn sem er í bókinni litlausu, nota skuldahlutfallið sem er 38 og fer niður í 37 þannig að við séum öll að tala um sömu hlutina, sömu tölurnar. En það breytir því ekki að skuldirnar eru að hækka. Þó að skuldahlutfallið sé að lækka, sama hvorn mælikvarðann þú notar, miðað við verga landsframleiðslu, eru skuldirnar að hækka um 80 milljarða að nafnvirði, 80 milljarða. Það kom mér líka á óvart, ég verð að segja það. Ég hélt að miðað við tekjuaukninguna þá myndum við ekki fara svona hátt upp í nafnvirði skulda.
Það er því ýmislegt í þessu sem maður staldrar við. Hér hafa hv. þingmenn komið og talað um að það sé verið að halda aftur af útgjaldavexti sem er 126 milljarðar, er að hækka um 100% frá því í frumvarpinu 2025. Ég held að það sé bara mikilvægt að við tölum um hlutina eins og þeir eru. Þetta frumvarp er alveg á mörkunum og jafnvel ekki hægt að kalla það aðhaldssamt. Útgjaldavöxturinn er mikill í frumvarpinu. Nafnvirði skulda er að hækka þó að við séum að ná skuldahlutfallinu niður, sem er jákvætt. Og það er margt jákvætt í þessu frumvarpi, eins og ég sagði í upphafi. En við þurfum að horfa á það sem við getum lagað og getum breytt. Ég hef áhyggjur af því, hér í lokin sagt, (Forseti hringir.) virðulegur forseti, að þetta frumvarp sem hér er lagt fram (Forseti hringir.) tali ekki nægilega vel inn í það markmið að lækka verðbólgu og stýrivexti Seðlabankans.