fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni ágæta ræðu. Varðandi hans yfirferð yfir aðhald þá vísa ég til fyrri orða minna í svari til hv. þm. Bergþórs Ólasonar. Þetta fjárlagafrumvarp er í fullu samræmi við framlagða fjármálaáætlun þar sem aðhaldsstigið var sett og við það er verið að standa. Til þess að tryggja málefnalega umræðu held ég að við þurfum að horfa til þess, þegar fullyrðingar um aðhald fjárlaga 2024 eða 2025 eru skoðaðar sérstaklega, að það aðhald kom fyrst og fremst til vegna þess að ákveðnir tímabundnir liðir, í tengslum við Covid annars vegar og Grindavíkuratburðina hins vegar, féllu niður. Aðhaldið kom ekki í samdrætti í öðrum ríkisútgjöldum. Það er auðvitað verkefni okkar allra, og verður á komandi vikum verkefni fjárlaganefndar, að fara yfir hvort meira megi gera. En ég vil þó benda á að sú klassíska aðferð íslenskra stjórnvalda að beita almennri aðhaldskröfu, sem er að jafnaði í kringum 1%, skilar einungis 2 milljörðum en aðhald þessa frumvarps er upp á 15 milljarða. Það er því ekki fyllilega í samræmi við tölur frumvarpsins að halda því fram að hér sé ekki sýnt aðhald. Það er líka mikilvægt, eins og ég bendi á, að við erum að fylgja fjármálastefnunni eftir.
En mig langar til að spyrja hv. þingmann, varðandi það að ná hallanum niður í núll, með hvaða hætti hann sæi fyrir sér að slíkt verði gert við núverandi aðstæður.