fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir mjög gott og kjarnyrt svar. Ég hlakka til að heyra hvaða uppbyggilegu hugmyndir munu koma fram í vinnu fjárlaganefndar varðandi það að ná því sameiginlega markmiði okkar, sem er ánægjulegt að við séum sammála um hér í þingsal, að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Mig langar að víkja að öðru atriði sem kom fram í ræðu hv. þingmanns og það er mælikvarði skulda. Nú er það þannig að uppgjör ÍL-sjóðs skekkir mjög allar tölur og þær tölur sem hv. þingmaður nefnir um skuldahækkun tengjast uppgjöri ÍL-sjóðs sem færist til í bókhaldi ríkisins yfir í A1-hluta. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á það að vandamálin með séríslenskar tölur er að þær eru oft búnar til af meiri, með leyfi forseta, pragmatík en kannski beinlínis forsjálni og betra væri að við héldum okkur alltaf við sömu mælikvarða. En þegar skuldir færast til í bókhaldi ríkisins þá getur það oft litið út fyrir að vera annað en það er. En ég tel að við séum sammála um það, ég og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, að uppgjörið á ÍL-sjóði var ákaflega mikilvæg aðgerð sem við studdum sennilega báðir.
Mig langar þess vegna til að spyrja hvort hv. þingmaður telji ekki eðlilegt að við reynum að halda okkur við viðmið sem gefa betri mynd og eru ekki eins viðkvæm fyrir einskiptisaðgerðum og heimasmíðuðu lausnirnar okkar hafa stundum viljað vera.