fjárlög 2026.
Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að taka til í ríkisfjármálunum til að auka skilvirkni þeirra án þess að það komi niður á helstu þáttum velferðarkerfisins. Þar er af mörgu að taka, t.d. varðandi þjónustu við minnihlutahópa, eldri borgara og öryrkja. Það er sérstakt fagnaðarefni að stefnt er að verulegum endurbótum á vegakerfi og uppbyggingu í samgöngum. Stofnun innviðafélags fyrir stærri framkvæmdir, eins og ráðherra samgöngumála hefur lýst, veit á gott ásamt því að samgönguáætlun verður lögð fram í fyrsta skipti í mörg ár.
Heilbrigðiskerfið hefur mátt þola niðurskurð í mörg ár. Fjármagn til flókinna og stórra heilbrigðiskerfa hefur í engu fylgt fólksfjölgun og er nú svo komið að senda þarf sjúklinga til meðferðar erlendis í meira mæli en nokkrum sinnum áður. Það tekur tíma að vinda ofan af áralangri vanrækslu þótt vissulega hafi margt gott verið gert í gegnum árin. En nú liggur á borðinu skýr áætlun fyrir næstu misseri og ár. Ég hef trú á því að sú áætlun muni skila okkur miklum úrbótum og meiri en við höfum lengi þorað að vona að gæti orðið að veruleika. Allt útlit er fyrir að áætlanir ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög árið 2027 nái fram að ganga. Það er risastórt stökk frá þeim gríðarlega halla sem myndaðist á sjö ára valdatíma ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna.
Þegar litið er á frumvarpið í heild sést að framlög aukast á fleiri stöðum en þar sem dregið er úr framlögum. Þetta er mögulega vegna hagræðingar og sparnaðaraðgerða ríkisstjórnarinnar sem er nú þegar farið að skila sér til brýnna verkefna. Sameiningar stofnana, endurskipulagning og niðurlagning óþarfa nefnda er brot af því sem verið er að gera til að nýta betur fjármuni ríkisins. Allt þetta er gert án þess að hækka skatta á heimilin í landinu. En í þessari ræðu langar mig að vekja sérstaka athygli á auknum framlögum til þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Framlög til þess málaflokks eru aukin um 3.000 millj. kr. í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga. Með samkomulaginu tekur ríkið yfir ábyrgð og kostnað af búsetu barna með fjölþættan vanda utan heimilis. Það er margt að skoða þegar kemur að þessum viðkvæma málaflokki. Til að mynda liggja ekki fyrir neinar opinberar skilgreiningar í lögum og reglugerðum um hvað felst í fjölþættum vanda. Ýmsar skýrslur hafa engu að síður verið gefnar út þar sem hugtakið er ávarpað. Það sem oftast er miðað við er að til staðar sé flókin og samsett röskun í tauga- og vitsmunaþroska og/eða tengslavandkvæði og/eða geðræn einkenni hjá viðkomandi barni. Í einstaka tilfellum getur vímuefnavandi einnig verið til staðar. Í allmörgum tilfellum er í grunninn um að ræða barnaverndarmál með sögu um mikla vanrækslu og/eða ofbeldi. Þjónusta við þennan hóp kallar á aðkomu margra þjónustukerfa, félags-, heilbrigðis-, menntunar- og frístundakerfis. Í flestum tilfellum er þörf á að tryggja öryggi barnsins og umhverfis þess allan sólarhringinn og því þörf á búsetu utan heimilis til lengri tíma og mögulega varanlega. Þessi málaflokkur felur því í sér fjölmargar áskoranir.
Fyrst er að nefna að auka þarf þekkingu á aðstæðum barna sem hafa skilgreinda greiningu fötlunar og/eða eru langveik. Leggja þarf áherslu á víðtækar lausnir frekar en að horfa á eina tegund vanda þegar við erum að vísa til fjölþætts vanda. Barn sem er með fötlun og fíknivanda sem dæmi er barn með fjölþættan vanda. Raunin er sú að sum börn glíma við þetta allt og fleira. Nauðsynlegt er að geta boðið börnum með fjölþættan vanda vistun eða dvöl á meðferðarheimili til að þau geti náð betri tökum á lífi sínu. Það er gott að vita til þess að ríkisstjórnin er einmitt að vinna í málunum út frá þessari sýn. Einnig þarf að horfa til hóps barna sem þarfnast þjónustu á grundvelli laga um langvarandi stuðningsþarfir, óháð greiningu. Sá hópur barna þarfnast umfangsmikillar þjónustu mögulega fram á fullorðinsár. Þessi hópur þarf að eiga kost á meðferð og hegðunarmótandi nálgun þannig að til frambúðar megi draga úr þjónustuþörf til þess að þau þurfi ekki að búa á stofnunum allt sitt líf.
Ríkisstjórnin og flokkarnir sem standa að baki henni munu koma enn sterkar og æ meira inn í þennan málaflokk með viðeigandi úrræði og taka þétt utan um börn sem eru skilgreind með þriðja stigs þjónustuþörf, bæði börn með fötlun, sjúkdóma og/eða börn sem hafa mátt þola vanrækslu og ofbeldi. Börn með fjölþættan vanda geta kallað á mjög mikla umönnun vegna síns sjúkdóms. Þessi börn eiga að sitja við sama borð við skipulag þriðja stigs þjónustu, helst auðvitað um allt land. Ákall hefur verið um meðferðarheimili, vistun utan heimilis fyrir börn með fíknivanda. Sannarlega er þörf á slíku úrræði en ef litið er til baka hafa frekar fá tilfelli vistunar utan heimilis til langs tíma verið vegna vímuefnavanda og fylgikvilla hans einvörðungu. Þess vegna er kannski ekki rétt að skilgreina þennan hóp með langveikum börnum eða telja þau með í mengi barna með fjölþættan vanda. Í tiltölulega nýrri skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda eru settar fram 14 tillögur um úrræði og útfærslu. Allar tillögurnar eru út af fyrir sig góðar. Eftir situr hins vegar að hugsa fyrir því með hvaða hætti á að koma á móts við langveik börn sem ekki geta búið á eigin heimili, vegna nauðsynjar á mikilli umönnun, mikilli hjúkrunar- og stuðningsþörf, eða börn sem glíma við afleiðingar vanrækslu og ofbeldis.
Frú forseti. Enda þótt þjónusta við börn á fyrsta og öðru þjónustustigi eigi að vera á ábyrgð sveitarfélaga er mikilvægt að langveik og fötluð börn fái þjónustu á þriðja stigi og sú þjónusta verður að vera á ábyrgð ríkisins. Ríkisstjórnin er vel meðvituð um þetta og ég veit að unnið er ötullega að úrbótum í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem ber hitann og þungann af málaflokknum.
Frú forseti. Í sumar var stofnaður stýrihópur um eftirfylgni samkomulags ríkis og sveitarfélaga sem var undirritað í marsmánuði. Hópurinn mun hafa það hlutverk að styðja við verkefni og þau sem sinna verkefninu á vettvangi Stjórnarráðsins og stuðla að framgangi þeirra verkefna sem samkomulagið lýtur að.
Frú forseti. Ég er sannfærð um að við hér á Alþingi munum öll vilja styðja ríkisstjórnina í þessari nauðsynlegu vegferð. Mörg þessara barna hafa setið á hakanum allt of lengi og því tími kominn til aðgerða. Nú í fyrsta sinn eru þessi mál mikið að skýrast og það hófst á því að samkomulag var gert milli sveitarfélaga og ríkisins um að þessi málaflokkur yrði tekinn yfir af ríkinu. Í framhaldi af því getum við sest niður öll saman og fundið bestu lausnirnar sem mögulegt er að finna fyrir þennan málaflokk, þ.e. þessi börn sem eru ekki bara með einhvern einn sjúkdóm, einhverja eina greiningu, heldur eru jafnvel með margar greiningar, sjúkdóma, fötlun og fíkn í sumum tilfellum.