fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans spurningu. Ég fagna því að það eigi að bregðast við þessu. Það voru kannski ekki alveg mín orð að það hafi ekkert verið sett í heilbrigðisþjónustu á síðasta kjörtímabili. Það er náttúrlega alls ekki þannig. Það er gríðarlegt fjármagn sem fer til heilbrigðisþjónustu hér á landi og það vitum við. En síðan hefur orðið mikil fólksfjölgun og einhvern veginn hefur kerfið ekki alveg náð að fylgja því eftir. Og það þekkir hv. þingmaðurinn, eins og við hin hér, að sem dæmi þarf fólk nú í meiri mæli að sækja meðferðir erlendis vegna ýmissa sjúkdóma.
En það hefur verið gríðarlegur vandi þegar horft er til barna og ungmenna. Þetta er náttúrlega altalað og búið að skrifa mikið um. Við getum horft til biðlistanna sem hafa verið gríðarlegir og verið er að taka á núna. Sérstaklega er búið að taka á því hjá barna- og unglingageðdeild og ekki síst hefur vantað gríðarlega mikið að bæta í þegar kemur að aðstoð við börn með geðfatlanir. Barna- og unglingageðdeild er margsprungin og það hefur verið virkilega erfitt að koma mörgum börnum að sem eru í miklum geðrænum vanda, með sálfræðilega vanlíðan og af ýmsum orsökum, að hjálpa þeim öllum og foreldrar hafa líka þurft að fá miklu meiri aðstoð. Það er varðandi þennan þátt sem ríkisstjórnin er virkilega að gefa í. Ég gæti hér í annarri ræðu rakið nokkra þætti sem eru í þessu fjárlagafrumvarpi sem beinast beint að þessum þáttum er varða geðfatlanir barna og að ná niður biðlistum. Það er líka talað um að á kjörtímabilinu verði sálfræðiþjónusta niðurgreidd. Þarna hefur vantað mikið á að til að koma betur til móts við þarfirnar.