fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem ég vildi benda á í mínu andsvari var að það skiptir máli hvernig við tölum hér. Það er ekki þannig að það hafi ekki verið bætt í eða að heilbrigðismálin hafi einhvern veginn verið sett út fyrir sviga á síðasta kjörtímabili. Það er ekki þannig. Ég get fengið þessar tölur og ég skal koma með þær hér upp. En aukningin í heilbrigðismálin umfram verðlag var gríðarleg og var talin í tugum milljarða.
Mig langar að lesa hér aðeins upp úr þessu ágæta fjárlagafrumvarpi:
Framlög til heilsugæslu árið 2024 voru 53 milljarðar, verða nú 49 milljarðar 2026. Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa er í heild sinni, 100 milljarðar 2024, verður 102. Þetta nær ekki verðlagsþróun. Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta var árið 2025 87 milljarðar og fer í 93, sem er 6,5%, sem er undir verðbólgunni. Lyf og lækningavörur voru árið 2024, 46 milljarðar, fara í frumvarpinu niður í 45 milljarða.
Er þetta hækkunin?