fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þetta var mjög skrýtið svar en ég þakka fyrir það engu að síður. Ég held að maður sé bara jafn háður maka sínum, hvort sem samanlagðar tekjur heimila eru 1.200 þús. kr. eða 2,4 millj. kr. Ég skil þetta því ekki alveg. Það er líka allt í lagi að horfa til þess hverjir það eru sem hafa það erfitt í landinu. Það eru ekki síst einstæðingar sem eiga ekki maka til að nýta samsköttunina. Þannig er samsköttunin kannski ekki að nýtast þeim hópum sem ríkið á að styðja við. Við eigum að styðja við tekjulága en ekki styðja sérstaklega við tekjuhæstu einstaklinga landsins. Allar greiningar sem hafa verið gerðar á þessu sýna það. Við munum kalla eftir þessum greiningum aftur inn í fjárlaganefnd. En mér finnst, og það er mín pólitíska sýn, að þegar við erum að stýra hér og forgangsraða peningum skattborgaranna að þá eigum við að styðja við þá sem eru tekjulágir frekar en að auka enn á stéttskiptingu í þessu landi og styðja við þá tekjuhæstu. Kannski deilum við þingmaðurinn ekki sömu pólitísku sýn hvað það varðar. En við verðum að vera sammála um greiningarnar á því hvaða áhrif þetta hefur og það er alveg ljóst að það eru hæstu tekjuhópar landsins sem nýta sér samsköttun og fá mest út úr henni. 81% þeirra sem nýta samsköttunina eru karlar og þetta er bara svo bullandi rangt allt fyrir mér út frá jafnaðarsjónarmiðum sem ég kýs að lifa eftir. Við komum frá ólíkum heimum hvað þetta varðar en við þurfum alla vega að vera sammála um þessar greiningar og þessar greiningar sýna svart á hvítu að þetta gagnast tekjuháum körlum sem eykur á ójöfnuð í þessu landi. Það er það sem ég sem jafnaðarmaður á erfitt með.