157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:09]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Frá vinnslu fjármálaáætlunar hafa heildartekjur aukist um 27 milljarða kr. eftir endurmatið. Og það er vissulega rétt að það fór ekki allt inn í minnkun á halla, ef svo má segja. Hluti af þessu, langstærsti hlutinn sem snýr að auknum gjöldum, eða í kringum 15, 16 milljarðar af þessum 27, kom til vegna verðbóta og vaxtagreiðslna. Þetta er bara staðan sem við þurfum að horfast í augu við. Þetta eru hreyfanlegar stærðir og ef spár um vaxtaþróun á næsta ári breytast þá hefur þetta þessi áhrif. Við tökum þessu alvarlega. Það hefur reynst erfiðara en við var búist að ná niður verðbólgutölunum og það hefur sjálfkrafa áhrif á rekstur ríkissjóðs þannig að það er ekki þannig að ríkið eða við höfum viljandi tekið þá ákvörðun um að ráðstafa þessum 11, 12, 13 milljörðum þarna inn. Þetta gerist, ef svo má segja, sjálfkrafa. En ég tek það alveg til mín og við erum bara mjög meðvituð um það að ef við sjáum ekki verðbólguna fara meira niður, þrátt þrátt fyrir að hún hafi aðeins tekið dýfu í síðustu mælingu, þá munum við þurfa að bregðast meira við. Þetta er bara eitthvað sem við erum að fylgjast með. Við erum að skoða aðgerðir á húsnæðismálahliðinni, og við munum þá koma með aðgerðir inn í 2. umræðu ef þörf er á. En ég vek samt athygli á því að af þessum 27 milljörðum þá fór mjög stór hluti í aukið aðhald, ef svo má segja, í að halda hallanum niðri. Þannig að sumt ráðum við sjálf við, annað ekki.

En ég vil segja varðandi krónutölugjöld og þess háttar: Ef fólk vill skera niður þá þarf að taka pólitíska ákvörðun um að skera niður. Ef þú ákveður að láta krónutölugjöld ekki fylgja verðlagi þá ertu í raun að fara í skattalækkun. Þá ertu í rauninni að ákveða að þessi þjónusta muni bara rýrna án þess að þú takir ákvörðun. Ég vil frekar að við viðhöldum því stigi þjónustu fyrir ákveðin útgjöld sem við erum búin að skuldbinda okkur til að hafa og þá frekar að taka pólitíska ákvörðun (Forseti hringir.) um að hætta að fjármagna eitthvað í staðinn fyrir að það rýrni bara smám saman.